12.10.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jói Berg um agabrot landsliðsmanna - „Pirringurinn hjá mér liggur þar"

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agabrot íslenskra landsliðsmanna var mikið í umræðunni í síðustu viku. Greint var frá því að nokkrir leikmenn hefðu farið út að skemmta sér.
Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður, ræddi um málið í hlaðvarpsþættinum Sjöan.

TENGT EFNI
Agabrot innan íslenska landsliðshópsins í glugganum
„Áður fyrr var þetta algengara, að menn væru þyrstir og fengju sér í glas. Í gegnum tíðina hjá Íslandi hefur þetta komið upp. En þegar Lars (Lagerback) kom inn bannaði hann þetta alveg, eftir verkefnin líka. Hjá þeim sem hafa komið í kjölfarið hafa menn samt alveg fengið leyfi til að fá sér eitt og eitt rauðvínsglas eftir síðasta leik í verkefni og skála, sérstaklega þegar vel gengur,“ sagði Jóhann í Sjöunni.
Atvikið átti sér stað milli tveggja síðustu leikjanna gegn Búlgaríu og Eistlandi. Jói Berg var ósáttur með þetta í ljósi þess hve slæm frammistaða liðsins var gegn Eistum.
„Auðvitað er þetta óheppilegt. Þeir fá frí þarna um kvöldið og einhverjir greinilega fara og fá sér, ég veit sjálfur ekki nákvæmlega hvað gerðist. Þeir töluðu um þetta innan hópsins, að þetta væri ekki nógu gott. Eistlands-leikurinn var líka svo lélegur og svo kemur þetta. Í þessum nútímafótbolta væri best að sleppa áfenginu milli leikja, sérstaklega þegar þú ert búinn að spila þrjá leiki á stuttum tíma. Það er þá kannski hægt að fá sér einn eða tvo eftir síðasta leikinn. Pirringurinn hjá mér liggur þar að ég hefði viljað sjá menn koma alveg brjálaða inn í þennan leik við Eistland, sýna að þetta hafi ekki haft áhrif. En sá leikur var bara mjög lélegur og þetta hjálpar ekki neinum.“