Fotbolti.net
13.10.26 - 10:05
Kári Snorrason

Hver verður fyrstur til að fá reisupassann? - Carrick talinn næst líklegastur

United hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu sex.

United hefur aðeins unnið einn leik af fyrstu sex.

Canon

Mynd: EPA

Sex umferðum er lokið í ensku úrvalsdeildinni og farið að hitna undir nokkrum stjórum.

Mikið hefur verið rætt og ritað um Man Utd undir stjórn Michael Carrick en byrjun liðsins á tímabilinu verður að teljast sem mikil vonbrigði. United er í 13. sæti og hefur aðeins unnið einn leik.

Carrick er talinn næstlíklegastur til að verða látinn taka pokann sinn fyrstur samkvæmt stuðlum veðbanka. Sá sem er talinn líklegastur til að missa starfið er Alvaro Arbeloa, sem tók við Fulham fyrir tímabilið.

Mikel Arteta er talinn vera sá sem er hvað öruggastur í starfi, Fabian Hurzeler og Keith Andrews koma þar á eftir.

Hér að neðan má sjá þá fimm stjóra sem veðbankar telja líklegasta til að verða fyrstir reknir í ensku úrvalsdeildinni.
Stjórnendur Man Utd þurfi að sýna miskunnarleysi og reka Carrick
TENGT EFNI

Stjórnendur Man Utd þurfi að sýna miskunnarleysi og reka Carrick

Líklegastir til að fá reisupassann fyrstir
Alvaro Arbeloa (Fulham) - 2.25
Michael Carrick (Man Utd) - 3.25
Robert De Zerbi (Tottenham) - 4.33
Oliver Glasner (Nottingham Forest) - 8.00
Pierre Sage (Crystal Palace) - 8.50

Fulham er með tvö stig.

Fulham er með tvö stig.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.