Fotbolti.net
12.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Ferðuðust ekki með Man Utd til Spánar

Ferðuðust ekki með Man Utd til Spánar
Canon

Mynd: EPA

Kobbie Mainoo og Luke Shaw ferðuðust ekki með Man Utd til Spánar fyrir leik liðsins gegn Atletico Madrid á morgun. Michael Carrick staðfesti að þeir væru að kljást við meiðsli sem þeir urðu fyrir í leiknum gegn Tottenham um helgina.

Báðir leikmennirnir voru fjarverandi á æfingu liðsins í dag en leikmenn flugu til Spánar í kjölfarið en Mainoo og Shaw urðu eftir.
Þetta verður annar leikur liðsins í deildarkeppni Meistaradeildarinnar en liðið vann fyrsta leikinn 4-0 gegn Sabah.

Liðið er hins vegar án sigurs í síðustu fjórum leikjum. Liðið situr í 13. sæti meeð sex stig eftir sex umferðir. Það er versta byrjun liðsins í 40 ár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.