13.10.26 - 10:30
Elvar Geir Magnússon
Stjóri Þóris í Feneyjum látinn taka pokann sinn

Giovanni Stroppa.

Mynd: EPA

Þórir Jóhann Helgason.

Mynd: Venezia

Giovanni Stroppa.

Mynd: EPA
Róðurinn hefur verið þungur hjá Venezia en ítalska félagið hefur rekið þjálfarann ??Giovanni Stroppa eftir sex töp í röð í deildinni.
Feneyjarfélagið staðfesti í morgun að Stroppa væri farinn, nokkrum klukkustundum eftir 3-1 tap á útivelli gegn Atalanta.
Þórir Jóhann Helgason lék síðustu sjö mínútur leiksins í gær en hann hefur komið við sögu í þremur deildarleikjum á tímabilinu.

TENGT EFNI
Ítalía: Enn eitt tapið hjá Þóri Jóhanni
Undir stjórn Stroppa komst Venezia upp í ítölsku A-deildina fyrir tímabilið en liðið er stigalaust eftir sex umferðir. Liðið hefur skorað fimm mörk en fengið á sig sextán.
Venezia hefur aðeins unnið einn af átta leikjum í öllum keppnum á tímabilinu, það var gegn B-deildarliðinu Modena í bikarnum 3-2. Liðið tapaði svo 2-1 gegn Udinese í næstu umferð.
Paolo Zanetti og Davide Nicola eru helst í umræðunni hjá ítölskum fjölmiðlum varðandi næsta stjóra Venezia.
Stroppa er fjórði stjórinn í ítölsku A-deildinni sem er rekinn á þessu tímabili. Fabio Grosso (Fiorentina), Domenico Tedesco (Bologna) og Carlos Cuesta (Parma) höfðu áður verið reknir. Næsti leikur Venezia er heimaleikur gegn Napoli á laugardaginn.
Þórir Jóhann er 26 ára og gekk í raðir Venezia frá Lecce í sumar.