Fotbolti.net
13.10.26 - 11:00
Snæbjört Pálsdóttir

Guðrún um Ídu Marín: „Mér er farið að þykja svolítið vænt um hana“

Guðrún Arnardóttir hefur tekið vel á móti Ídu Marín Hermannsdóttur hjá Hammarby og segir gaman að sjá hana blómstra í sínum fyrstu skrefum í atvinnumennsku.

Guðrún Arnardóttir hefur tekið vel á móti Ídu Marín Hermannsdóttur hjá Hammarby og segir gaman að sjá hana blómstra í sínum fyrstu skrefum í atvinnumennsku.

Canon

Mynd: Hammarby

Kvennalandslið

Landsliðskonan Guðrún Arnardóttir og leikmaður Hammarby í Svíþjóð, er hæstánægð með hvernig Ída Marín Hermannsdóttir hefur komið inn í liðið og segir skemmtilegt að fylgjast með henni blómstra.

„Hvar væri ég án hennar?"
TENGT EFNI

„Hvar væri ég án hennar?"

Ída Marín Hermannsdóttir gekk til liðs við Hammarby í sumar og hefur fengið að njóta reynslu Guðrúnar, sem þekkir sænsku deildina vel.

Í samtali við Fótbolta.net fyrir helgi sagði Ída að hún vissi ekki hvar hún væri án Guðrúnar, sem hefði reynst henni afar vel eftir komuna til Svíþjóðar.

Guðrún var spurð út í þessi ummæli Ídu og hvernig væri að hafa hana hjá sér í Hammarby.

„Það er ótrúlega skemmtilegt og ég hef haft mjög gaman af henni. Við erum alltaf að tengjast meira og meira,“ sagði Guðrún.

Hún var sömuleiðis dugleg að hrósa Ídu fyrir frammistöðuna inni á vellinum.

„Hún er á sama tíma búin að koma og standa sig ótrúlega vel. Ég held hún sé búin að koma að mörkum í öllum leikjunum sem hún hefur spilað nema kannski þeim síðasta. Hún er bara búin að hlaða inn mörkum og stoðsendingum, sækja vítaspyrnur og standa sig ótrúlega vel.“

„Það er bara gaman að sjá hana blómstra og komast inn í allt. Mér er farið að þykja svolítið vænt um hana þarna.“

Guðrún hefur sjálf mikla reynslu af atvinnumennsku og segir að sú reynsla geti komið sér vel þegar yngri leikmenn stíga sín fyrstu skref erlendis.

„Ég þekki náttúrulega sænsku deildina og kúltúrinn og er búin að vera í Hammarby síðan um jólin. Ég er farin að þekkja þetta umhverfi ágætlega heilt yfir.“

Hún segir ýmislegt ólíkt því sem Ída á kannski að venjast, enda sé hún að stíga sín fyrstu skref í atvinnumennsku eftir að hafa leikið í háskólaboltanum í Bandaríkjunum og í Bestu deildinni á Íslandi.

„Það er gott stundum að hafa einhvern sem þekkir bæði og getur hjálpað manni með það. En hún er að standa sig ótrúlega vel og hún væri alveg í góðum málum þó ég væri ekki þarna,“ sagði Guðrún að lokum.

Ída Marín Hermannsdóttir blómstrar úti í Svíþjóð og hefur gott bakland í reynsluboltanum Guðrúnu.

Ída Marín Hermannsdóttir blómstrar úti í Svíþjóð og hefur gott bakland í reynsluboltanum Guðrúnu.

Canon

Mynd: Hammarby

Guðrún hefur engar áhyggjur þótt Ísland sæki á mörgum mönnum

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.