Fotbolti.net
12.10.26 - 14:35
Elvar Geir Magnússon

Stjórnendur Man Utd þurfi að sýna miskunnarleysi og reka Carrick

Michael Carrick.

Michael Carrick.

Canon

Mynd: EPA

Byrjun Manchester United á tímabilinu hefur verið mjög slæm, liðið hefur ekki byrjað deildina eins illa í 40 ár.

John Cross, íþróttastjóri Mirror, telur að Michael Carrick geti ekki gert Manchester United að meistaraliði og að stjórnendur félagsins þurfi að sýna miskunnarleysi.
„Það er gott að vera vitur eftirá, en í maí hefði einhver hjá Manchester United átt að kveðja Michael Carrick og segja: 'Takk, þú hefur unnið frábært starf og ert orðinn enn meiri goðsögn'," segir Cross.

„Á þeim tímapunkti hefði United átt að fá til sín stórt nafn. Einhvern eins og Antonio Conte sem leiddi Chelsea til titilsins með Victor Moses í liðinu. Ég er ekki að gera lítið úr Moses heldur bara að undirstrika þá staðreynd að úrvalsstjórar gera alla leikmenn betri."

„Við getum öll verið sammála um að leikmannahópur United er langt frá því að vera eins sterkur og hann var á árum áður. En þetta er miðlungshópur sem stendur sig ekki vel, það virðist vanta áhuga og neista."

„Ég held að Carrick geti ekki breytt United í meistaralið (og það er það sem þeir vilja vinna að) og því verða stjórnendur félagsins að vera miskunnarlausir."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.