Fotbolti.net
13.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Pogba: Carrick þarf tíma

Pogba: Carrick þarf tíma
Canon

Mynd: EPA

Manchester United hefur verið í miklum vandræðum í upphafi tímabilsins. Paul Pogba, fyrrum samherji Carrick hjá Man Utd, segir að hann þurfi tíma til að sýna sig og sanna.

Michael Carrick kom sterkur inn á síðasta tímabili en hefur ekki náð að fylgja því eftir.
Liðið er í 13. sæti með sex stig eftir sex umferðir en þetta er versti árangur liðsins í 40 ár.

„Þetta er bara byrjunin á tímabilinu og það er langt. Hann sýndi sig á síðasta tímabili, allir sögðu að hann væri stjórinn sem myndi breyta öllu. Nú koma úrslitin ekki og þá er hann of ungur," sagði Pogba.

„Margt getur breyst, þeir þurfa að gefa honum tíma og þetta verður í góðu lagi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.