13.10.26 - 09:10
Elvar Geir Magnússon
Man Utd með augastað á Simeone

Giuliano Simeone er sonur Diego Simeone, stjóra Atletico.

Mynd: EPA

Frenkie de Jong.

Það er safaríkt kvöld í Meistaradeildinni þar sem Arsenal mætir Hákoni Arnari Haraldssyni og félögum í Lille og Manchester United etur kappi við Atletico Madrid. En hér er slúðurpakki til að stytta biðina!
Manchester United mun skoða vel argentínska framherjann Giuliano Simeone (23) hjá Atletico Madrid þegar liðin mætast í Meistaradeildinni í kvöld. (Mundo Deportivo)
Chelsea þarf að greiða að minnsta kosti 50 milljónir punda til að freista Barcelona til að selja hollenska miðjumanninn Frenkie de Jong (29) í janúar. (Football Insider)
Mörg félög í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á að fá serbneska miðjumanninn Aleksandar Stankovic (21) frá Inter. (AS)
Chelsea er tilbúið að ganga að verðmiða Bournemouth fyrir enska miðjumanninn Alex Scott (23) í janúar, þó að félagið vonist enn til að hann skrifi undir nýjan samning. (Teamtalk)
Werder Bremen hefur ekki klásúlu um að kaupa þýska framherjann Niclas Fullkrug (33) sem er á láni frá West Ham og félögin eiga enn eftir að ræða um framtíðarsamning. (Sky Sports Þýskalandi)
Belgíski markvörðurinn Thibaut Courtois (34) er mjög nálægt því að framlengja samning sinn við Real Madrid til ársins 2028. (Mundo Deportivo)
Brighton hefur áhuga á pólska sóknarmiðjumanninum Bartosz Mazurek (19) hjá Red Bull Salzburg fyrir janúargluggann. (Teamtalk)