Fotbolti.net
13.10.26 - 11:20
Innkastið

Sumarkaupin í Bestu sem hafa valdið vonbrigðum

Jason Daði gekk í raðir KR frá Grimsby.

Jason Daði gekk í raðir KR frá Grimsby.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lið í Bestu deildinni fóru mikinn á félagaskiptamarkaðnum í sumar og voru stór nöfn sem komu inn í deildina um mitt mót.

Misjafnlega hefur þó gengið hjá nýju leikmönnunum og hafa sumir þeirra ekki náð að standa undir þeim væntingum sem gerðar voru til þeirra.

Í Innkastinu var rætt um stór félagaskipti sumarsins sem hafa ekki staðið undir væntingum. Hér að neðan má sjá sex leikmenn sem komu í deildina hafandi verið erlendis og ekki náð að heilla.
Sveinn Aron Guðjohnsen (Víkingur R.)
Sveinn gekk til liðs við Víking undir lok sumargluggans en hefur ekki náð að finna taktinn í Víkinni.

Skömmu eftir komu Sveins féllu Víkingar úr Evrópukeppni en hann skrifaði undir samning út tímabilið og hefur hlutverk hans eflaust meðal annars átt að vera að létta undir álaginu vegna Evrópukeppninnar.

Sveinn hefur leikið þrjá leiki án þess að koma að marki og þá hefur hann verið ónotaður varamaður í þremur leikjum.

Árni Vilhjálmsson (Stjarnan)
Mörg lið voru orðuð við Árna þegar ljóst varð að hann væri á heimleið. Heimkoma hans hefur hins vegar valdið miklum vonbrigðum, líkt og tímabil Stjörnunnar í heild.

Árni hefur leikið ellefu leiki fyrir Stjörnuna og aðeins skorað eitt mark.

Þorleifur Úlfarsson (Breiðablik)
Þorleifur sneri aftur heim í Kópavoginn í sumar eftir að hafa gert góða hluti í Bandaríkjunum.

Þegar hann var kynntur til leiks hjá Breiðabliki var hann spurður hvað hann kæmi með að borðinu. Þorleifur stóð ekki á svörum og sagði einfaldlega að hann kæmi með mörk.

Þau hafa hins vegar látið á sér standa en Þorleifur hefur aðeins skorað eitt mark í níu leikjum.

Jason Daði Svanþórsson (KR)
Mikil eftirvænting ríkti eftir endurkomu Jasons í Bestu deildina eftir tveggja ára dvöl hjá Grimsby á Englandi.

Meiðsli hafa hins vegar sett strik í reikninginn og hefur Jason aðeins komið við sögu í þremur leikjum. Alls hefur hann leikið 64 mínútur síðan hann gekk til liðs við KR.

Svo lítið hefur farið fyrir honum að margir eru eflaust búnir að gleyma því að KR hafi fengið Jason til liðs við sig í sumar.

Ari Leifsson (Stjarnan)
Ari var nálægt því að ganga til liðs við Val en endaði nokkuð óvænt hjá Stjörnunni. Honum hefur ekki tekist að vinna sér fast sæti í liðinu og í upphafi var mikið rætt um að koma honum í leikform.

Ari hefur aðeins verið í byrjunarliðinu í þremur af þrettán mögulegum leikjum. Stjörnumenn hafa eflaust vonast eftir sterkari innkomu frá leikmanni sem var að snúa heim úr atvinnumennsku.

Victor Bertomeu (Þór)
Þórsarar létu mikið að sér kveða á félagaskiptamarkaðnum í sumar og gengu nánast öll kaup félagsins upp, að Victor Bertomeu undanskildum.

Bertomeu, sem er framherji, er sannkallaður ævintýramaður sem kom til Þórs frá Kerala Blasters á Indlandi. Honum hefur hins vegar ekki tekist að setja mark sitt á liðið og hefur leikið sjö leiki án þess að koma að marki.

Ólíklegt verður að teljast að hann verði áfram í herbúðum Þórsara á næsta tímabili.
Sveinn Aron hefur komið með lítið að borðinu.

Sveinn Aron hefur komið með lítið að borðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Miklar vonir voru bundnar við Árna Vilhjálmsson.

Miklar vonir voru bundnar við Árna Vilhjálmsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorleifur aðeins skorað eitt mark.

Þorleifur aðeins skorað eitt mark.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jason hefur einungis spilað 64 mínútur með KR á tímabilinu.

Jason hefur einungis spilað 64 mínútur með KR á tímabilinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari gekk í raðir Stjörnunnar frá Kolding.

Ari gekk í raðir Stjörnunnar frá Kolding.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Spilað sjö leiki án þess að koma að marki.

Spilað sjö leiki án þess að koma að marki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Hvaða félög taka þátt í þjálfarakaplinum?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.