Fotbolti.net
13.10.26 - 11:46
Elvar Geir Magnússon

Aftur með stjórnartaumana gegn Íslandi

Atanas Ribarski stýrir Búlgaríu aftur gegn Íslandi.

Atanas Ribarski stýrir Búlgaríu aftur gegn Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Búlgarskir fjölmiðlar greina frá því að Robert Prosinecki sé líklegastur til að taka við landsliði þjóðarinnar en hann hefur verið í viðræðum við fótboltasambandið. Forseti sambandsins, Georgi Ivanov, segir hinsvegar að fleiri þjálfarar séu í sigtinu.

Næsti leikur Búlgaríu er heimaleikur gegn Íslandi í Þjóðadeildinni þann 13. nóvember. Búlgaría er án þjálfara en U19 þjálfarinn Atanas Ribarski tók við liðinu til bráðabirgða í síðasta glugga og stýrði því í 3-0 tapi gegn Íslandi á Laugardalsvelli og svo til sigurs á útivelli gegn Lúxemborg 2-0.

Ivanov staðfesti að Ribarski muni klára Þjóðadeildina og verður því með stjórnartaumana gegn Íslandi í Plovdiv og Eistlandi í Tallinn.

Brasilíumaðurinn Sylvinho var sterklega orðaður við þjálfarastarfið hjá Búlgörum en viðræður við hann virðast hafa runnið út í sandinn og líklegast er að Prosinecki taki við Búlgörum eftir næsta landsleikjaglugga.
„Fékk að reykja í sturtuklefanum því hann var snillingur“
TENGT EFNI

„Fékk að reykja í sturtuklefanum því hann var snillingur“

Ekki blómlegur þjálfaraferill
Prosinecki er yfirleitt ekki langlífur í starfi á þjálfaraferlinum. Hann stýrði Svartfjallalandi í Þjóðadeildinni 2024 og var hans fyrsti leikur sem þjálfari liðsins einmitt gegn Íslandi. Hann tapaði báðum leikjunum gegn Íslandi 2-0.

Á síðasta ári tók hann við Kirgistan en var aðeins níu mánuði í starfi. Þjálfaraferill hans hefur alls ekki verið blómlegur en hæfileikar hans sem leikmaður voru gríðarlegir.

Prosinecki, sem er 55 ára, lék fyrir Barcelona og Real Madrid. Hann var í króatíska landsliðsliðinu sem tók bronsið á HM 1998 og sjö árum áður hafnaði hann í fimmta sæti í Ballon d'Or kjörinu eftir að hafa orðið Evrópumeistari með Rauðu Stjörnunni.
Robert Prosinecki stýrði Svartfjallalandi gegn Íslandi.

Robert Prosinecki stýrði Svartfjallalandi gegn Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ísland vann Búlgaríu 3-0 í byrjun mánaðarins.

Ísland vann Búlgaríu 3-0 í byrjun mánaðarins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.