Fotbolti.net
12.10.26 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Setur kröfur á Andra Lucas

Setur kröfur á Andra Lucas
Canon

Mynd: Blackburn Rovers

Tony Mowbrey, stjóri Blackburn, hefur segir að Andri Lucas Guðjohnsen, framherji liðsins, eigi að stefna á að skora 20 mörk á tímabilinu.

Andri hefur skorað fjögur mörk í átta leikjum í Championship deildinni. Þá skoraði hann tvö mörk í landsleikjunum fjórum í síðasta landsliðsglugga.
„Hann er nokkuð fjölhæfur framherji sem er líkamlega sterkur og getur haldið boltanum, unnið skallabolta og framlengt okkar sóknir. Hann veit upp á hár hvar markið er og finnur sig vel milli línanna,“ sagði Mowbray.

„Hvert lið þarf framherja sem skilar mörkum sem færa okkur sigra. Hann verður að stefna að því að ná 20 mörkum á þessu tímabili og vonandi fleirum. Ég er ánægður með hann og himinlifandi með að hann skoraði aftur. Hann skoraði nokkur mörk snemma í landsleikjahléinu, skoraði aftur núna og skoraði líka fyrir okkur snemma á tímabilinu. Mér líkar vel við Andra, hann er virkilega góður knattspyrnumaður, dæmigerður framherji sem veit hvar markið er.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.