mið 08. mars 2023 17:17
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Myndi fara á leiki hjá Arsenal bara til að horfa á hann"
Thomas Partey.
Thomas Partey.
Mynd: EPA
Yaya Toure, fyrrum miðjumaður Manchester City og Barcelona, segist elska að horfa á Thomas Partey spila fótbolta.

Toure var frábær miðjumaður á sínum tíma og er með betri miðjumönnum sem hafa spilað í ensku úrvalsdeildinni. Í dag er Partey einn besti miðjumaður deildarinnar en hann hefur verið virkilega góður fyrir topplið Arsenal á leiktíðinni.

„Ég myndi fara á leiki hjá Arsenal bara til að horfa á hann. Hann er ótrúlegur," sagði Toure um Partey á Talksport.

„Hann er magnaður leikmaður."

Arsenal er í harðri baráttu við Man City um titilinn en Toure vonar að sitt gamla félag, City, muni ná að enda sem meistari. Lundúnafélagið er með fimm stiga forskot þegar tólf leikir eru eftir.

Partey er enn til rannsóknar hjá lögreglu eftir að hafa verið handtekinn síðasta sumar grunaður um tvær mismuanandi nauðganir. Arsenal ákvað að setja hann ekki til hliðar þrátt fyrir málið og hefur hann átt sitt besta tímabil fyrir félagið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner