Fotbolti.net
30.09.26 - 22:43
Ívan Guðjón Baldursson

Rui Pinto: Infantino hylmdi yfir með Man City og PSG

Rui Pinto: Infantino hylmdi yfir með Man City og PSG
Canon

Mynd: EPA

Portúgalinn Rui Pinto hefur verið duglegur að birta færslur á samfélagsmiðlinum X að undanförnu.
Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City
TENGT EFNI

Rui Pinto er með fleiri gögn um Manchester City

Pinto er maðurinn sem lak mikið af mikilvægum trúnaðargögnum úr fótboltaheiminum í gegnum síðuna Football Leaks, var dæmdur fyrir það og er í dag partur af vitnavernd.

Pinto er talinn vera með fleiri gögn í höndunum sem sýna fram á enn frekari brot Manchester City undir eignarhaldi Sheikh Mansour. Í nýlegri færslu talar hann um Gianni Infantino, forseta FIFA sem hefur legið undir harðri gagnrýni að undanförnu.

Infantino hefur legið undir gagnrýni fyrir hegðun sína í kringum heimsmeistaramótið en Pinto nýtir tækifærið til að rifja upp gamalt mál frá því þegar Infantino starfaði fyrir evrópska fótboltasambandið, UEFA.

„Árið 2014 var einn maður innan UEFA sem vissi um svindl Manchester City. Sá maður er í dag forseti FIFA, Gianni Infantino. Þá dagana var hann aðalritari UEFA og misnotaði vald sitt til að hjálpa Man City og PSG að komast undan alvarlegum refsingum frá evrópska fótboltasambandinu," segir Pinto.

„Hann deildi trúnaðargögnum með félögunum og lék á rannsóknarnefnd UEFA til að tryggja að Man City og PSG fengu einungis sektir fyrir alvarleg brot sem hefðu meðal annars getað leitt til brottreksturs úr Meistaradeildinni og banns. Þessi gögn voru öll gerð opinber á sínum tíma í gegnum Football Leaks.

„Í ljósi aðgerða hans í starfi sínu sem aðalritari UEFA og nýlega sem forseti FIFA get ég bara sagt að mín skoðun er sú að Gianni Infantino er orðinn að krabbameini fyrir fótboltaheiminn. Hann ætti ekki að eiga neinn stað í framtíð íþróttarinnar."


Þýski miðillinn Der Spiegel fjallaði ítarlega um mál tengd Football Leaks á sínum tíma og skrifaði meðal annars um leynifundi Infantino með stjórnendum Man City og PSG. Þar deildi hann trúnaðargögnum með þeim og hjálpaði stórveldunum þannig að dansa í kringum reglugerð UEFA.
Rui Pinto: Infantino hylmdi yfir með Man City og PSG
Canon

Mynd: EPA

Rui Pinto: Infantino hylmdi yfir með Man City og PSG
Canon

Mynd: EPA

Rui Pinto: Infantino hylmdi yfir með Man City og PSG
Canon

Mynd: Spiegel

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.