Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 15:30
Elvar Geir Magnússon
Talið líklegast að Hansi Flick taki við Þýskalandi
Hansi Flick, stjóri Bayern.
Hansi Flick, stjóri Bayern.
Mynd: Getty Images
Sagt er að Hansi Flick sé efstur á blaði hjá þýska knattspyrnusambandinu sem leitar að nýjum landsliðsþjálfara en Joachim Löw hættir eftir Evrópumótið í sumar.

Flick hefur náð eftirtektarverðum árangri síðan hann tók við Bayern München 2019 og landað sex bikurum hjá félaginu, þar á meðal þýska meistaratitlinum og Meistaradeildinni í fyrra.

Ef Flick tekur við þýska landsliðinu gæti Bayern München reynt að fá Julian Nagelsmann, stjóra RB Leipzig.

Nagelsmann hefur lengi verið orðaður við ensku úrvalsdeildina og sagt að Tottenham sé að horfa til hans.
Athugasemdir
banner