Fyrr í kvöld var greint frá því þegar sómalískum HM-dómara var meinuð innganga í Bandaríkin.
Omar Artan, sem hefur verið viðurkenndur FIFA dómari síðan 2018 og átti að vera fyrsti sómalíski HM-dómari sögunnar, var kjörinn besti afríski dómarinn í fyrra og var spenntur fyrir að fara á sitt fyrsta heimsmeistaramót í ár. Hann fékk þó ekki inngöngu í Bandaríkin og hafa gestgjafarnir ekki gefið neina sérstaka ástæðu.
Andrew Giuliani, yfirmaður starfshóps Hvíta hússins á heimsmeistaramótinu og sonur hins umdeilda Rudy Giuliani, sagðist ekki getað tjá sig nákvæmlega um ástæðu þess að Artan hafi verið meinuð innganga. Hann sagði þó að starfsmenn toll- og landamæragæslu Bandaríkjanna hafi tekið rétta ákvörðun þegar þeir vísuðu Artan úr landi.
„FIFA getur staðfest að dómarinn Omar Abdulkadir Artan mun ekki geta tekið þátt á heimsmeistaramótinu 2026 eftir að honum var meinuð innganga í Bandaríkin," segir í yfirlýsingu frá FIFA.
„FIFA hefur engin áhrif á landamæragæslu gestgjafaríkja heimsmeistaramótsins og hefur bandaríska ríkisstjórnin staðfest að Artan fær ekki inngöngu í landið."
Artan ferðaðist á sérstöku diplómatísku vegabréfi sem einskonar sendiherra fyrir Sómalíu, en var þrátt fyrir það meinuð innganga. Sómalíska fótboltasambandið er ósátt og hefur krafið FIFA um nánari útskýringar.
08.06.2026 19:55
Sómalískum dómara meinað um inngöngu í Bandaríkin
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!




