Íslensku eigendurnir hjá Stoke City ætluðu að ráða ungan og óreyndan Thomas Tuchel í stað Guðjóns Þórðarsonar vorið 2001, en þetta segir Pete Smith hjá The Sentinel.
Stoke Holding, sem var í eigu Gunnars Gíslasonar, Magnúsar Kristinssonar, Stefáns Þórissonar og Halldórs Birgissonar, keypti 70 prósenta hlut í Stoke árið 1999.
Margir Íslendingar léku með Stoke á meðan félagið var í þeirra eigu og Guðjón Þórðarson þjálfaði liðið í þrjú ár.
Undir hans stjórn tapaði Stoke tvisvar í undanúrslitum umspilsins um sæti í B-deildinni og var samband hans við Gunnar, stjórnarformann félagsins, sagt stirrt.
Sentinel segir að vorið 2001 hafi staðan verið þannig að félagið þurfti að skera niður kostnað og margir mikilvægir leikmenn yfirgáfu félagið. Graham Kavanagh og Peter Thorne voru meðal þeirra sem fóru, en þeir sömdu við Cardiff sem var í sömu deild.
Félagið íhugaði að láta Guðjón fara, en það sem gleymist gjarnan er að hann átti mikilvægan þátt í því að Íslendingarnir keyptu Stoke árið 1999. Vorið 2022 tókst Guðjóni að koma liðinu upp um deild en var látinn fara eftir tímabilið. Sagði Gunnar að staða Guðjóns væri orðin óverjandi og að hann hafi ekki áttað sig á þeim fjárhagslegu takmörkunum sem hann þurfti að starfa innan.
Guðjón svaraði Gunnari í viðtali við Sentinel þar sem hann sagði stjórn Stoke tvisvar hafa reynt að finna mann í hans stað. Ray Graydon, sem var rekinn frá Walsall í janúar 2002, var talinn líklegur til að taka við eftir tap Stoke gegn Port Vale í sama mánuði.
„Ég veit að stjórnin var með ákveðinn mann í huga eftir að við töpuðum fyrir Walsall, en átök bak við tjöldin urðu til þess að ég fékk eitt ár til viðbótar. Þessi vandamál bak við tjöldin höfðu staðið yfir meira og minna í heilt ár, en ég hélt að eftir að hafa stýrt liðinu upp um deild væru þau að baki. Ég veit að fótboltinn getur verið grimmur, en stjórar eru vanalega reknir þegar úrslitin eru ekki nógu góð,“ sagði Guðjón á þessum tíma.
Árinu áður hafði það reynt að fá óþekktan og óreyndan þjálfara hjá unglingaliði Stuttgart. Sá maður var Thomas Tuchel, sem var þá að stíga sín fyrstu skref á þjálfaraferlinum eftir að hafa neyðst til að leggja skóna á hilluna vegna meiðsla.
Sentinel ræddi við Ásgeir Sigurvinsson, sem sat í stjórn Stoke á þessum tíma, og spurði hvort þessar upplýsingar um Tuchel stæðust.
„Ég get staðfest að Thomas var að þjálfa unglingalið hjá mínu gamla félagi, Stuttgart, og hann hefur gert ansi góða hluti síðan,“ sagði Ásgeir.
Tuchel kom aldrei til Stoke en átti síðar eftir að eiga stórkostlegan feril hjá Mainz, Borussia Dortmund, Chelsea, Paris Saint-Germain og Bayern München áður en hann tók við enska landsliðinu árið 2024.

