Er stuðningsmaður Man Utd en myndi það stoppa hann?

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andoni Iraola er tekinn við Liverpool.

Mynd: Liverpool

Hákon á æfingu með landsliðinu.

Mynd: KSÍ

Liverpool fagnar marki á síðasta tímabili.

Mynd: EPA

Hákon Arnar Haraldsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Á dögunum var birtur pistill hér á Fótbolta.net þar sem farið var yfir fimm félög á Englandi sem myndu henta Hákoni Arnari Haraldssyni vel út frá leikstíl.
Eitt af þeim félögum sem var talið upp í greininni var Liverpool.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 25. júní á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast neðst í fréttinni, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría vikuáskrift.

Hákon er stuðningsmaður Manchester United, en myndi það stoppa hann? Það er erfitt að horfa fram hjá Liverpool þegar rætt er um mögulegt næsta skref Hákonar og sérstaklega út af nýjum stjóra liðsins.
Eftir að Andoni Iraola tók við liðinu kemur Liverpool til með að snúa aftur að mun ákafari og beinskeyttari leikstíl sem verður meira í líkingu við það sem Jurgen Klopp gerði. Hugmyndafræði Spánverjans byggist á því að vinna boltann eins hátt á vellinum og mögulegt er og refsa andstæðingnum áður en hann nær að endurskipuleggja sig. Það er leikstíll sem ætti að gefa Hákoni verkfærin til að blómstra.
Á árunum hjá Bournemouth var lið Iraola meðal þeirra bestu í ensku úrvalsdeildinni þegar kom að því að vinna boltann hátt á vellinum, skotum eftir að þeir unnu boltann hátt á vellinum og mörkum sem áttu upptök sín í slíkum aðgerðum. Jafnframt spiluðu lið hans af miklum hraða, með fáum sendingum í hverri sókn og stöðugri leit að markinu.
Þar liggja stærstu styrkleikar Hákonar. Hann er einn öflugasti pressuleikmaður Ligue 1, vinnur boltann reglulega á hættulegum svæðum og er jafnframt yfirvegaður þegar boltinn er kominn aftur í hans vörslu. Hann er ekki aðeins leikmaður sem hleypur mikið, heldur leikmaður sem vinnur boltann og tekur síðan rétta ákvörðun.
Það sést einnig á sóknartölfræðinni. Hann er leikmaður sem kemur sér reglulega í stöðu til að hafa úrslitaáhrif.
Fjölhæfnin myndi einnig nýtast Liverpool vel. Hákon getur spilað sem tía, á báðum köntum eða jafnvel sem fremsti maður þegar þörf krefur. Iraola hefur í gegnum þjálfaraferil sinn lagt mikla áherslu á leikmenn sem geta skipt um stöðu innan leikja án þess að liðsheildin raskist og þar fellur Hákon fullkomlega inn.
Það sem gæti hins vegar staðið í vegi fyrir honum er samkeppnin. Florian Wirtz er fyrsti kostur í skapandi hlutverkinu á miðjunni ásamt Dominik Szoboszlai og Liverpool býr yfir gríðarlegum gæðum á sóknarhelmingi vallarins. Hákon myndi því ekki ganga inn í byrjunarliðið.
En ef horft er eingöngu til leikstíls er jafnvel erfitt að finna lið í Evrópu sem passar betur eftir stjóraskiptin. Pressan, ákefðin, hraðinn í sóknum og krafa um fjölhæfni eru allt eiginleikar sem hafa einkennt Hákon undanfarin ár. Ef Liverpool leitar að leikmanni sem getur bæði hækkað ákefðina án bolta og bætt gæði með boltann gæti Íslendingurinn verið gríðarlega áhugaverður kostur fyrir Iraola.
Í pistlinum hér fyrir neðan er hægt að lesa meira um þessar hugleiðingar.

TENGT EFNI
Fimm félög á Englandi fyrir Hákon Arnar