Fotbolti.net
27.06.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Bielsa: Ákvörðun sem Muslera tók sjálfur

Bielsa: Ákvörðun sem Muslera tók sjálfur
Canon

Mynd: EPA

Hinn fertugi Fernando Muslera, markvörður Úrúgvæ, átti vægast sagt vont mót á HM. Hann gerði enn ein mistökin þegar Úrúgvæ féll úr leik eftir tap gegn Spáni í lokaumferð H-riðils í nótt.

Alex Baena skoraði eina mark leiksins með skoti beint á Muslera en honum tókst ekki að verja boltann frá.
Það vakti athygli að Marcelo Bielsa, þjálfari Úrúgvæ, tók hann af velli í hálfleik.

„Ég tók ekki þessa ákvörðun. Þetta var ákvörðun sem hann tók sjálfur," sagði Bielsa.

Bielsa var einnig spurður út í það hvers vegna hann hafi tekið Federico Valverde, leikmann Real Madrid, af velli eftir tæplega klukkutíma leik.

„Ég vildi fá meiri sóknarþunga, markmiðið var að fá fleiri færi," sagði Bielsa.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.