Eiður Orri: Geggjuð tilfinning að vera kominn í þennan klúbb

22 ára Vopnfirðingur sem hefur vakið athygli með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fagnar hér keflvísku marki gegn Víkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri og Davíð Helgi Aronsson eru nú á láni frá Víkingi hjá Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað eitt mark og lagt upp þrjú í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins með KFA haustið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fer til Víkings eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

22 ára Vopnfirðingur sem hefur vakið athygli með Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiður var með lausan samning í haust og samkvæmt heimildum Fótbolta.net höfðu fleiri félög áhuga á honum, en hann kaus að semja í Víkinni. Fótbolti.net ræddi við kappann.

Víkingur kaupir Eið Orra (Staðfest) - Kemur eftir tímabilið
„Það er bara geggjuð tilfinning að vera kominn í þennan klúbb. Stór og flottur klúbbur sem ég sé fram á að þróast sem fótboltamaður hjá. Umgjörðin í kringum klúbbinn er líka geggjuð."
„Ég tók gott samtal við umboðsmanninn minn og mitt nánasta fólk svo tók ég spjall við liðsfélaga minn Davíð Helga líka áður en ég tók ákvörðun," segir Eiður Orri.
Það var fjallað um tilboð úr Bestu deildinni síðasta vetur, hvernig leið þér með að því hefði verið hafnað?
„Það var bara eins og það var, ég er sáttur á þeim stað sem ég er í dag."
Ánægður með að klára tímabilið í Keflavík
Þú klárar tímabilið með Keflavík, var það þín ósk?
„Ég er ánægður með að klára tímabilið hér. Ég byrja þá að æfa með Víkingi næsta vetur og kemst inn í hlutina þá."
Þú ert á þínu fyrsta tímabili í efstu deild, hvernig finnst þér að spila í deildinni?
„Mér finnst geggjað að spila í Bestu deildinni, gæða leikmenn í öllum liðum. Það er munur á hraða leiksins á milli deilda finnst mér."
Hafði alltaf trú á liðinu
Keflavík hefur farið nokkuð vel af stað í Bestu deildinni og er með tólf stig eftir ellefu leiki. Hvernig líður þér með byrjunina á tímabilinu með Keflavík?
„Mér líst mjög vel á hana, hefðum getað verið með aðeins fleiri stig en ég er sáttur með stigafjöldann. Ég bjóst við því fyrir mót, hafði alltaf trú á okkur."
Keflavík hefur fengið einn skell í sumar, gegn ÍBV á útivelli. Hvað gerðist hjá ykkur í Eyjum?
„Við mættum hreinlega ekki til leiks í Eyjum," segir Eiður einfaldlega.
Hvernig líst þér á seinni hluta tímabilsins, hvert er markmiðið?
„Seinni hluti tímabilsins leggst vel í mig, það væri geggjað að enda í topp sex, en okkar markmið er klárlega fyrst og fremst að halda okkur uppi."
Vill koma að enn fleiri mörkum
Eiður Orri er 22 ára kantmaður. Þú ert kominn með eitt mark og þrjár stoðsendingar í deildinni, ertu sáttur með eigin frammistöðu?
„Nei, ég er ekki nógu sáttur með marka- og stoðsendingafjöldann. Ég hefði verið til í að vera kominn með meira, en frammistaðan hefur verið nokkuð góð heilt yfir. Ég setti mér það markmið að skora og leggja upp mikið af mörkum í sumar."
Aldrei farið til Bolungarvíkur
Í tilkynningu Víkings var upphaflega sagt að Eiður Orri Bolvíkingur en því var síðar breytt. Eiður Orri er Vopnfirðingur og lítur á sig sem slíkan.
„Ég er að austan frá Vopnafirði, veit ekki hvernig Bolungarvík kom upp. Ég hef ekki stigið fæti í þann bæ."
Spilar hann gegn Víkingi í næsta mánuði?
Er samkomulag milli félaganna um að þú spilir ekki gegn Víkingi í næsta mánuði?
„Ég veit það ekki, það kemur bara í ljós þegar kemur að þeim leik," segir Eiður Orri að lokum.
Hann verður líklega í eldlínunni á morgun þegar Keflavík tekur á móti KR í 12. umferð Bestu deildarinnar. Sá leikur hefst klukkan 17:00.

Fagnar hér keflvísku marki gegn Víkingum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eiður Orri og Davíð Helgi Aronsson eru nú á láni frá Víkingi hjá Keflavík.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skorað eitt mark og lagt upp þrjú í Bestu deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í úrslitaleik Fótbolti.net bikarsins með KFA haustið 2024.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fer til Víkings eftir tímabilið.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 13 | +38 | 37 |
| 2 | KR | 12 | +15 | 28 |
| 3 | Fram | 11 | +5 | 23 |
| 4 | Breiðablik | 12 | +6 | 19 |
| 5 | Valur | 12 | -4 | 16 |
| 6 | ÍA | 11 | -5 | 15 |
| 7 | Keflavík | 11 | -7 | 12 |
| 8 | Stjarnan | 12 | -5 | 11 |
| 9 | ÍBV | 11 | -5 | 11 |
| 10 | KA | 11 | -6 | 10 |
| 11 | Þór | 11 | -19 | 7 |
| 12 | FH | 11 | -13 | 6 |




