Ari Leifs orðaður við Stjörnuna og Breiðablik

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það er óvíst hvar Ari Leifsson spilar næst á ferlinum en miðvörðurinn virtist á leið í Val. Eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn fara þaðan hefur hann verið orðaður við önnur félög.
Hann er orðaður við Breiðablik í Innkastinu og í Dr. Football orðar hans fyrrum liðsfélagi, Ragnar Bragi Sveinsson, Ara við lið Stjörnunnar. Þeir Ragnar Bragi og Ari léku saman hjá Fylki. Þá herma heimildir Fótbolta.net að ÍA hafi einnig áhuga á Ara.
Umræðan um Stjörnuna hefur í lengri tíma verið á þá leið að skortur væri á öflugum miðvörðum. Guðmundur Kristjánsson, Sindri Þór Ingimarsson og Gustav Kjeldsen eru miðverðir Stjörnunnar. Hjá Breiðabliki eru fyrir þeir Ásgeir Orri Helgason, Viktor Örn Margeirsson og Ívar Örn Árnason.
Ari og Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Breiðabliks, spiluðu og unnu saman hjá Fylki á árunum 2018-2020.

TENGT EFNI
Breyttar forsendur og Ari Leifs fer líklega ekki í Val
Ari er fæddur árið 1998 og lék síðast á Íslandi árið 2019. Hann var keyptur til Strömsgodset frá Fylki 2020 og árið 2024 gekk hann í raðir Kolding. Samningur hans við danska félagið rann út fyrr í sumar.