Fotbolti.net
08.07.26 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Blind snýr heim í annað sinn (Staðfest)

Blind snýr heim í annað sinn (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daley Blind er mættur aftur til uppeldisfélagsins Ajax og skrifar undir eins árs samning.

Hann kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Girona féll úr gildi.

Blind er 36 ára Hollendingur sem hefur spilað með Ajax, Groningen, Manchester United, Bayern München og Girona á sínum ferli.

Hann hóf ferilinn hjá Ajax, fór svo til Man Utd en sneri aftur árið 2018 og var í rúm fjögur ár í Amsterdam. Hann tók hálft ár hjá Bayern áður en hann hélt svo til Spánar.
Hann á að baki 108 landsleiki og vann til bronsverðlauna með hollenska landsliðinu árið 2014 á HM.

Á ferlinum hefur hann sjö sinnum orðið Hollandsmeistari og einu sinni Þýskalandsmeistari. Hjá United vann hann enska bikarinn og Evrópudeildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.