Fotbolti.net
08.07.26 - 14:49
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Emersonn til Ipswich fyrir metupphæð (Staðfest)

Emersonn til Ipswich fyrir metupphæð (Staðfest)
Canon

Mynd: Ipswich

Nýliðarnir í Ipswich hafa fest kaup á brasilíska framherjanum Emersonn sem kemur frá Toulouse.

Ipswich, sem komst upp í úrvalsdeildina í vor, greiðir 26,6 milljónir punda sem er hæsta upphæð sem Ipswich hefur greitt fyrir leikmann.
23,9 milljónir punda fara strax til Toulouse og sú upphæð getur hækkað um 2,7 milljónir punda.

Emersonn verður 22 ára í næstu viku og var einnig orðaður við Hull. Hann skrifar undir samning sem gildir til 2031. Hann skoraði sex mörk og lagði upp tvö í Ligue 1 á síðasta tímabili.

Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Ipswich fær eftir að Gary O'Neil tók við sem stjóri liðsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.