Fotbolti.net
08.07.26 - 10:08
Kári Snorrason

Hildur til Newcastle (Staðfest)

Hildur til Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle

Hertz
Landsliðskonan Hildur Antonsdóttir er gengin í raðir enska félagsins Newcastle.

Hún gengur til liðs við Newcastle frá spænska félaginu Madrid CFF þar sem hún hefur verið undanfarin tvö ár.
Newcastle endaði í 6. sæti í ensku B-deildinni á síðustu leiktíð.

„Ég er mjög ánægð með að vera hér. Allir á Íslandi þekkja Newcastle og þetta er augljóslega stór klúbbur, ég er mjög stolt. Það er mér heiður að fá að bera þetta merki,“ sagði Hildur í samtali við heimasíðu félagsins.

Hildur á að baki 37 A-landsleiki. Hún er uppalin í Val en hefur jafnframt spilað með Breiðabliki hérlendis.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.