Fotbolti.net
08.07.26 - 12:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hólmar Örn í tveggja leikja bann - Þrír aðrir í bann

Hólmar í tveggja leikja bann.

Hólmar í tveggja leikja bann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fjórir í Bestu deildinni eru komnir í leikbann eftir að hafa fengið spjald í liðinni umferð. Þrjú rauð spjöld fóru á loft í liðinni umferð og þýðir það sjálfkrafa bann, alls staðar nema á HM.

Gabríel Hrannar Eyjólfsson fékk tvö gul spjöld og þar með rautt þegar KR mætti Þór á fimmtudag. Gabríel verður í banni þegar KR tekur á móti ÍBV á sunnudag.

Eiður Benedikt Eiríksson, aðstoðarþjálfari Þórs, fékk þá rauða spjaldið fyrir munnsöfnuð og verður ekki á bekknum gegn Fram á útivelli á sunnudag.

Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, fékk þá sitt annað rauða spjald í sumar og þarf því að taka út tveggja leikja bann. Hann verður í banni gegn FH á útivelli og Fram á heimavelli.
Samherji Hólmars hjá Val, Bjarni Mark Antonsson, fékk þá að líta sitt fjórða gula spjald í sumar gegn ÍBV og verður í banni gegn FH á sunnudag.

14. umferð Bestu deildarinnar
sunnudagur 12. júlí
18:00 Fram-Þór (Lambhagavöllurinn)
18:00 KR-ÍBV (Meistaravellir)
18:00 KA-ÍA (Greifavöllurinn)
20:05 FH-Valur (Kaplakrikavöllur)

mánudagur 13. júlí
19:15 Breiðablik-Keflavík (Eikarvöllurinn)
Eiður Ben tekur út leikbann gegn Fram.

Eiður Ben tekur út leikbann gegn Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.