Inter Miami vill Vozinha - Rogers í forgangi hjá Arsenal

Slegið í gegn á HM.

Mynd: EPA

Efstur á óskalista Arsenal.

Mynd: EPA

Everton vill Spence.

Mynd: EPA

Slegið í gegn á HM.

Mynd: EPA

Morgan Rogers er efstur á óskalista Englandsmeistarana, Liverpool ber víurnar í mexíkóskt ungstirni og Inter Miami vill hinn fertuga Vozinha. Þetta og margt fleira í slúðurpakka dagsins.
Arsenal hefur gert Morgan Rogers (23) að aðalmarkmiði sínu og vill kaupa enska landsliðsmanninn frá Aston Villa. (The Athletic)
Liverpool hefur kannað möguleikann á að fá Gilberto Mora (17), mexíkóskan miðjumann Club Tijuana sem heillaði á HM. (El Universal)
Everton vill kaupa Djed Spence (25), varnarmann Tottenham, sem er um þessar mundir með Englandi á HM. (The Athletic)
Tottenham undirbýr tilboð upp á 85 milljónir punda í Junior Kroupi (19), franskan sóknarmann Bournemouth. (TalkSport)
Inter Miami vill fá HM stjörnuna Vozinha (40), markvörð Grænhöfðaeyja, eftir að hann var leystur undan samningi hjá Chaves í portúgölsku B-deildinni. (Marca)
Chelsea er að undirbúa nýjan samning fyrir miðjumanninn Jesse Derry (18) til að halda Bayern Munchen frá honum. (Football Insider)
Nýliðar Ipswich vilja framherjann Emersonn (21) frá Toulouse og gera hann að dýrasta leikmanni í sögu félagsins. (Give Me Sport)
PSG er í viðræðum um kaup á miðjumanninum Maghnes Akliouche (24) frá Monaco. (RMC Sport)