Fotbolti.net
08.07.26 - 11:16
Elvar Geir Magnússon

Newcastle vill skemmtilegasta leikmann Sviss

Johan Manzambi.

Johan Manzambi.

Canon

Mynd: EPA

Newcastle United vill fá kantmanninn Joham Manzambi sem hefur vakið mikla athygli með Sviss á HM. Manzambi hefur verið einn skemmtilegasti leikmaður heimsmeistaramótsins og hans var sárt saknað af fótboltaáhugafólki þar sem hann gat ekki verið með gegn Kólumbíu í gær vegna meiðsla.

Newcastle er í ákveðinni uppbyggingu og hefur verið að eltast eftir hugruðum leikmönnum á svipuðum aldri. Félagið hefur keypt kantmanninn Bazoumana Toure frá Hoffenheim fyrir 43 milljónir punda og markvörðinn Ewen Jaouen frá Reims.

Þá er félagið nálægt því að landa miðjumanninum Sean Steur frá Ajax fyrir um 23 milljónir punda. Þessir þrír leikmenn eru allir undir 20 ára aldri.
Maður dagsins á HM - Dýrkaði Neuer og vildi verða markvörður
TENGT EFNI

Maður dagsins á HM - Dýrkaði Neuer og vildi verða markvörður

Manzambi er 20 ára en félag hans, Freiburg í Þýskalandi, er í sterkri stöðu eftir flotta frammistöðu hans á HM. Newcastle er með pening til leikmannakaupa innan fjárhagsreglna eftir söluna á Sandro Tonali til Tottenham en upphæðin fyrir hann gæti risið upp í 100 milljónir punda.

Manzambi skipti nýlega um umboðsmannaskrifstofu og það er ljóst að hann mun skoða stöðu sína eftir HM.
Newcastle vill skemmtilegasta leikmann Sviss
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.