Fotbolti.net
08.07.26 - 11:51
Innkastið

Spáir því að þjálfarakapli Vals sé ekki lokið þetta tímabilið

Chris Brazell spjallar við Halldór Árnason.

Chris Brazell spjallar við Halldór Árnason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ummæli Bjarna Guðjónssonar í Stúkunni á Sýn Sport um þjálfaramál Vals hafa vakið athygli en hann furðar sig á því hvernig staðið var að málum þegar Hermann Hreiðarsson var rekinn.

Halldór Árnason tekur við liðinu í nóvember en Chris Brazell, sem var aðstoðarmaður Hermanns, stýrir liðinu út tímabilið. Bjarna finnst furðulegt að Halldór taki ekki strax við.

„Ég held að við séum ekki alveg búnir að sjá fyrir enda þjálfarakapals Vals á þessu tímabili," sagði Bjarni í þættinum og ýjaði að því að Brazell myndi mögulega ekki vera þjálfari út tímabilið.

„Ef þetta heldur áfram svona, ætlar Dóri þá að sitja upp í stúku og stýra Val úr fjarska og leyfa þeim að fara niður í neðri hlutann? Það getur enginn sagt mér að nýr þjálfari Vals sé ekki farinn að stýra liðinu, eða því sem er hægt, úr fjarska."
Vonar að Brazell hafi þroskast - „Hegðunin oft á tíðum til skammar“
TENGT EFNI

Vonar að Brazell hafi þroskast - „Hegðunin oft á tíðum til skammar“

Í Innkastinu var rætt um þessi ummæli Bjarna.

„Mér finnst þetta skemmtilegar pælingar hjá Bjarna, þetta er alveg rétt hjá honum. Hvað með leikmannakaup? Það þarf að tala við leikmenn fyrir næsta tímabil, verður Dóri eitthvað inn í því?" segir Valur Gunnarsson og Tómas Þór Þórðarson bætir við:

„Ég spyr mig hvort menn séu búnir að hugsa þetta til enda?"

Valur tapaði 1-0 fyrir ÍBV í fyrsta leiknum undir stjórn Chris Brazell eftir brotthvarf Hermanns.

„Það var ekki að sjá neina breytingu. Valsmenn virkuðu orkulausir og voru ekki að gera mikið með boltann. Þetta var ekki fjörugasti leikur í heimi," segir Valur.

Heimild: Stúkan á Sýn

Halldór Árnason og Bjarni Guðjónsson.

Halldór Árnason og Bjarni Guðjónsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Innkastið - Áfall í Evrópusigri

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.