Fotbolti.net
08.10.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tarik klár í slaginn fyrir næsta tímabil

Tarik klár í slaginn fyrir næsta tímabil
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eins og greint var frá í gær þá framlengdi Tarik Ibrahimagic samning sinn við Víking til næstu þriggja ára.
Tarik búinn að framlengja við Víking
TENGT EFNI

Tarik búinn að framlengja við Víking

Ibrahimagic hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu frá því að kom frá Vestra árið 2024.

Hann var óheppinn að meiðast í sumar á hné og hefur verið fjarverandi undanfarna mánuði. Í tilkynningu frá Víking segir að hann verði klár í slaginn áður en nýtt tímabil hefst.

„Tarik hefur sýnt það frá fyrsta degi hvað í honum býr. Hann er leikmaður sem þjálfarar treysta, sama hvar á vellinum hann er settur, og hann hefur vaxið mikið hjá okkur. Það er mikilvægt fyrir félagið að halda leikmönnum af hans gæðum og karakter, og við hlökkum til að sjá hann aftur á vellinum," sagði Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.