Fotbolti.net
07.10.26 - 18:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Auglýsing
Katla Tryggvadóttir.

Katla Tryggvadóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Þetta eru mjög mikilvægir leikir. Við getum komist héðan einu skrefi nær markmiðinu okkar," sagði landsliðskonan Katla Tryggvadóttir þegar hún ræddi við Fótbolta.net í Rovinj í Króatíu í dag.

Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru tveir leikir gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM. Fyrri leikurinn fer fram í Pula í Króatíu á föstudaginn.
„Við erum betra liðið en það er undir okkur komið að sýna það inn á vellinum," segir Katla um einvígið sem er framundan.

Er ekki góð stemning í hópnum?

„Það er alltaf góð stemning í íslenska kvennalandsliðinu," sagði Katla og brosti.

Ótrúlega spennt fyrir framhaldinu
Katla er leikmaður Fiorentina á Ítalíu og er að hefja sitt annað tímabil þar. Lífið er gott í Flórens og liðið er með stór markmið.

„Deildin er loksins byrjuð sem er skemmtilegt. Ég er ótrúlega spennt fyrir framhaldinu. Við erum að spila skemmtilegan fótbolta og ég held að við séum að fara að gera eitthvað gott á þessu tímabili," segir Katla.

„Fyrsta tímabilið var upp og niður, en ég lærði ótrúlega mikið af því. Þetta var fyrsta tímabilið í mjög sterkri deild. Það er gaman að vita hvað maður er að fara út í núna."

„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði. Þannig að þetta er bara gaman."

Hver eru markmiðin?

„Klúbburinn setur skýr markmið fyrir okkur. Meistaradeildarsæti er eitthvað sem við ætlum að ná í. Það er náttúrulega geðveikt að spila í Meistaradeildinni og það er eitthvað sem við ætlum að ná í á þessu tímabili. Það er klárt," sagði Katla.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Katla er leikmaður Fiorentina á Ítalíu.

Katla er leikmaður Fiorentina á Ítalíu.

Canon

Mynd: Fiorentina

„Borgin er geggjuð og ég er í geggjuðu liði“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.