Fotbolti.net
07.10.26 - 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Einnig gjaldgeng fyrir Holland – „Alltaf langað að spila fyrir Ísland“

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Auglýsing
Líf Joostdóttir van Bemmel.

Líf Joostdóttir van Bemmel.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eimskip
„Tilfinningin var bara geggjuð. Ég er búin að vera mjög spennt frá því að Steini hringdi í mig og lét mig vita að ég væri valin," sagði Líf Joostdóttir van Bemmel, nýliði í íslenska landsliðshópnum, þegar hún ræddi við Fótbolta.net í Króatíu í dag.

Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eru staddar í Króatíu þar sem þær mæta heimakonum á föstudaginn í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM.
Sungið á fyrstu æfingu nýliðans
TENGT EFNI

Sungið á fyrstu æfingu nýliðans

Líf, sem varð 19 ára í gær, er nýliði í hópnum. Hún er fjölhæfur leikmaður sem hefur spilað mjög vel með Breiðabliki, toppliði Bestu deildarinnar, í sumar.

„Ég er búin að vera að stefna að þessu frá því ég var lítil, þetta hefur verið draumur frá því ég var fimm ára."

Það er ekki síður skemmtilegt að eiga afmæli í fyrsta landsliðsverkefninu. Það var sungið fyrir Líf á æfingu í gær og svo var kaka um kvöldið.

„Við fengum köku svo í kvöldmatinn, afmælisköku og það var sungið líka þá. Tveir afmælissöngvar," sagði Líf og brosti.

Búin að jafna mig
Líf hefur átt mjög gott sumar með Breiðabliki og fengið stærra hlutverk í liðinu. Í síðasta leik fyrir landsleikjaverkefni unnu Blika 5-4 sigur á Þrótti í ótrúlegum leik.

„Ég er búin að jafna mig. Þetta var svakalegur leikur. Góð þrjú stig og mikilvæg. Við erum efstar núna og vonandi helst það þannig," sagði Líf en það er möguleiki á því að Breiðablik og FH mætist í uppgjöri um Íslandsmeistaratitilinn í lokaumferð deildarinnar.

„Það er mikilvægt að vera þremur stigum á undan FH þegar það eru tveir leikir eftir."

Kom ekki til greina að spila fyrir Holland
Eins og eftirnafnið gefur til kynna á Líf ættir að rekja til Hollands en faðir hennar, Joost van Bemmel, kemur þaðan. Hún segir þó að það hafi ekki annað komið til greina en að spila fyrir Ísland.

„Pabbi er hollenskur þannig að ég er hálf hollensk," sagði Líf.

„Ég hef alltaf búið á Íslandi og mig hefur alltaf langað að spila fyrir Ísland."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Líf fagnar marki með Breiðabliki í sumar.

Líf fagnar marki með Breiðabliki í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Líf er efnilegur leikmaður.

Líf er efnilegur leikmaður.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á æfingu Íslands í gær.

Á æfingu Íslands í gær.

Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.