07.10.26 - 17:30
Elvar Geir Magnússon
Slæm byrjun Marquez með Mexíkó

Rafael Marquez tók við Mexíkó í sumar.

Mynd: EPA

Rafael Marquez tók við Mexíkó í sumar.

Mynd: EPA
Maximiliano Gutierrez og Vicente Pizarro skoruðu í seinni hálfleik þegar Síle vann 2-0 sigur gegn Mexíkó í vináttulandsleik.
Þetta var annar tapleikur Mexíkó í röð en liðið tapaði 3-0 gegn Bandaríkjunum um helgina. Mexíkó vann engan af þeim fjórum leikjum sem liðið spilaði í Bandaríkjaför sinni; liðið gerði tvö 1-1 jafntefli, gegn Kólumbíu og Perú.

TENGT EFNI
Rafa Márquez tekinn við Mexíkó (Staðfest)
Rafael Marquez tók við Mexíkó í sumar og er þetta versta byrjun hjá landsliðsþjálfara Mexíkó síðan 1981 þegar Raúl Cardenas tók við liðinu í annað sinn og fór í gegnum níu leiki án sigurs.
Marquez tók við eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari liðsins í nokkur ár. undanfarin ár. Marquez er goðsögn í Mexíkó eftir að hafa spilað 147 landsleiki og verið partur af sterku liði Barcelona á árunum 2003-2010.
Marquez stefnir á að vinna sinn fyrsta leik sem þjálfari í nóvember þegar Mexíkó mætir Jamaíku í Þjóðadeild Concacaf.