07.10.26 - 16:11
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ída fékk góða hjálp - „Ég valdi rétta félagið"
Skrifar frá Rovinj í Króatíu
Auglýsing

Ída Marín á æfingu Íslands.

Mynd: KSÍ

Ída Marín var frábær með FH fyrri hluta sumars.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann Hreiðarsson, faðir Ídu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ída er leikmaður Hammarby.

Mynd: Hammarby

Ída Marín á æfingu Íslands.

Mynd: KSÍ

„Ég er mjög spennt að sjá hvernig þær spila. Ég held að þetta verði erfiður leikur en við tökum þetta," sagði landsliðskonan Ída Marín Hermannsdóttir þegar hún ræddi við Fótbolta.net í Rovinj í Króatíu í dag.
Stelpurnar okkar í íslenska landsliðinu eru staddar í Króatíu þar sem þær mæta heimakonum á föstudaginn í fyrri leik liðanna í umspili fyrir HM.

TENGT EFNI
Ída Marín gerði þrennu í frumrauninni
„Þær eru með fína leikmenn og geta spilað vel. En ef við spilum okkar leik þá ættum við ekki að ströggla of mikið. Við eigum að vera betri."
Ísland er talsvert fyrir ofan Króatíu á heimslistanum en þetta er fyrri hluti umspilsins um að komast á HM. Ísland þarf að vinna tvö einvígi til að komast á mótið og er Króatía fyrsti andstæðingurinn.
„Það er draumur að fá að taka þátt í þessu. Það væri það besta sem gæti gerst fyrir einhvern sem spilar fótbolta að fara á HM. Það er mjög spennandi," sagði Ída.
Valdi rétta félagið
Ída var stórkostleg með FH fyrri hluta sumars í Bestu deildinni, líklega besti leikmaður deildarinnar, en hún var nýverið seld út til Svíþjóðar. Þar gekk hún í raðir Hammarby sem er þessa stundina í öðru sæti sænsku deildarinnar.
„Ég valdi rétta félagið. Ég er búin að vera þarna í einn og hálfan mánuð eða tvo. Það var erfitt að koma inn í nýtt félag þar sem allir tala bara sænsku. Smám saman varð þetta auðveldara. Ég er búin að venjast æfingaálaginu og er mjög ánægð með þetta skref."
Það var mikill áhugi á Ídu. Var erfitt að taka ákvörðun?
„Það var það. Ég vissi ekki alveg í hvaða átt ég ætti að fara með þetta, hvort ég ætti að taka risaskref eða minna. En þetta var fullkomið skref fyrir mig. Ég er búin að fatta það síðustu vikur. Þetta er mjög flott."
Ída kemur af mikilli fótboltaætt en foreldrar hennar voru bæði landsliðsfólk. Faðir hennar, Hermann Hreiðarsson, hjálpaði henni að taka ákvörðun um að fara til Svíþjóðar.
„Pabbi minn er umboðsmaðurinn minn myndi ég segja. Við töluðum mikið um þetta þar sem þetta er risaákvörðun. Ég þurfti að skoða mjög margt. Þetta, Hammarby, gat eiginlega ekki klikkað upp á að þroskast og þróast sem leikmaður."
Ída segir gott að faðir sinn hafi upplifað þetta áður, fótboltaheiminn erlendis. „Hann veit hvernig þetta allt saman er. Hann var ekki sjálfur með einhvern umboðsmann, hann græjaði þetta bara sjálfur. Ég hafði fulla trú á því að hann gæti tekið ákvörðunina með mér," sagði Ída.
Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.