Fotbolti.net
07.10.26 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Skipti Madríd út fyrir Newcastle - „Alltaf langað í enska boltann“

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Auglýsing
Hildur Antonsdóttir.

Hildur Antonsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Eimskip
„Við erum á mjög fínu hóteli og bærinn hérna er mjög flottur," sagði Hildur Antonsdóttir, landsliðskona Íslands, þegar hún ræddi við Fótbolta.net í Rovinj í Króatíu í dag.

Framundan hjá íslenska kvennalandsliðinu eru tveir leikir gegn Króatíu í umspilinu fyrir HM. Fyrri leikurinn fer fram í Pula í Króatíu á föstudaginn.
Hildur komin á blað hjá Newcastle sem er með fullt hús stiga
TENGT EFNI

Hildur komin á blað hjá Newcastle sem er með fullt hús stiga

„Við erum búnar að fara á tvær æfingar og það hefur gengið vel. Við höfum farið yfir hluti sem við ætlum að gera í leiknum og svoleiðis."

Ísland er langt fyrir ofan Króatíu á heimslistanum og er mun líklegra liðið fyrir þetta einvígi.

„Við eigum að vera betri en þær en við þurfum að mæta í leikinn og spila okkar besta leik. Þú getur ekki mætt með hálfan haus, þú verður að mæta 100%"

Skipti út Madríd fyrir Newcastle
Hildur yfirgaf spænska félagið Madrid CFF í sumar og gekk í raðir Newcastle á Englandi. Kvennalið Newcastle er á uppleið en liðið hefur unnið fyrstu fimm leiki sína í næst efstu deild Englands á þessu tímabili.

„Það tekur sinn tíma að venjast nýjum aðstæðum, en ég er búin að njóta mín og liðið er mjög gott. Stelpurnar eru skemmtilegar," sagði Hildur en það er nú ágætis tilbreyting að færa sig úr sólinni í Madríd yfir í kalda norðrið á Englandi.

„Það er náttúrulega mjög mikil tilbreyting, en Newcastle hefur komið á óvart. Hún er miklu flottari en ég bjóst við. Ekki alveg eins og Madríd, en samt flott."

Hún er búin að koma sér vel fyrir á nýjum slóðum. „Þetta hefur tekið sinn tíma. Bretarnir eru smá tregir með allt. En ég hef komið mér vel fyrir núna."

Það er skemmtilegt að fá að upplifa það að spila í enska boltanum.

„Mig hefur alltaf langað í enska boltann. Þegar þetta kom upp, þá hugsaði ég að þetta væri tækifærið mitt til að fara þangað. Kvennaboltinn er á rosalega mikilli uppleið á Englandi og það er gaman að vera partur af því," sagði Hildur að lokum.
Hildur gekk í raðir Newcastle í sumar.

Hildur gekk í raðir Newcastle í sumar.

Canon

Mynd: Newcastle

Skipti Madríd út fyrir Newcastle - „Alltaf langað í enska boltann“
Canon

Mynd: Newcastle

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.