Fotbolti.net
07.10.26 - 15:30
Elvar Geir Magnússon

Eckert fékk væga refsingu og getur stýrt Southampton áfram

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Tonda Eckert, stjóri Southampton.

Canon

Mynd: EPA

Tonda Eckert getur haldið áfram sem stjóri Southampton eftir að hafa verið dæmdur í sex vikna skilorðsbundið bann vegna njósnamálsins umtalaða.

Þá var Þjóðverjinn áminntur og fékk 28 þúsund punda sekt í bann. Dómurinn þykir mjög vægur og Eckert getur prísað sig sælan.
Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsingu
TENGT EFNI

Segir félagið þegar hafa tekið út þunga refsingu

Eftir að upp komst um njósnir Southampton á æfingum þriggja keppinauta sinna var liðinu sparkað út úr umspili Championship-deildarinnar á síðasta tímabili og missti því af möguleika á úrvalsdeildarsæti og öllu sem því fylgir. Að auki voru fjögur stig dregin af Southampton fyrir þetta tímabil.

Southampton sendi njósnara til að fylgjast með æfingum andstæðinga og varð mikið fjölmiðlafár þegar hann var nappaður að fela sig bak við tré á æfingasvæði Middlesbrough.

Southampton hefur farið nokkuð vel af stað á nýju tímabili í Championship-deildinni, liðið væri í fjórða sæti en ekki því þrettánda ef ekki væri fyrir stigafrádráttinn.

Frá umfjöllun um njósnamálið.

Frá umfjöllun um njósnamálið.

Canon

Mynd: Daily Mail

Championship - karlar

#LiðLmunStig
1Swansea8+717
2West Ham8+1115
3Middlesbrough8+415
4Wolves7+514
5West Brom8+214
6QPR8+313
7Stoke City8+113
8Bristol City8-113
9Charlton Athletic8-312
10Birmingham8+111
11Millwall8011
12Lincoln City8-111
13Southampton8+910
14Wrexham8-310
15Bolton8-410
16Blackburn809
17Norwich8-19
18Sheffield Utd8-29
19Portsmouth7-18
20Watford8-38
21Cardiff City8-27
22Derby County8-75
23Preston NE8-74
24Burnley8-84
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.