07.10.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gordon: Pedri sér gjörsamlega allt

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Anthony Gordon gekk til liðs við Barcelona frá Newcastle í sumar og hefur byrjað tímabilið virkilega vel.
Hann hefur lagt upp fimm mörk í sex leikjum í spænsku deildinni. Þá skoraði hann þrjú mörk og lagði upp eitt í þremur leikjum með enska landsliðinu í glugganum sem lauk í gær.

„Eric Garcia hefur hjálpað mér mikið því hann talar fullkomna ensku. Ég skil smá í spænsku en þegar þeir tala mjög hratt á milli sín er erfitt að skilja. Dani Olmo hefur líka hjálpað mér mikið," sagði Gordon um tímann sinn hjá Barcelona.
Gordon finnst gaman að spila með spænska miðjumanninum Pedri.
„Ég hef tekið mörg hlaup á ferlinum sem enginn sá. Núna er ég með Pedri sem sér gjörsamlega allt," sagði Gordon.