Fotbolti.net
08.10.26 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Sú besta og sú markahæsta áfram hjá ÍR

Sú besta og sú markahæsta áfram hjá ÍR
Canon

Mynd: ÍR

Kvennaboltinn
Steinunn Lind Hróarsdóttir og Tara Dís Ármann hafa skrifað undir tveggja ára samning við ÍR og munu leika áfram með liðinu.

Þetta eru býsna góð tíðindi fyrir ÍR-inga.
„Steinunn hefur reynst okkur gífurlega mikilvæg eftir að hún kom til okkar fyrst fyrir tímabilið í fyrra frá KH. Hún hélt tryggð við félagið sem sýnir úr hverju hún er gerð. Ásamt því steig hún upp í sumar þegar við þurftum á henni að halda á báðum endum vallarins og leiddi liðið áfram með frábæru fordæmi. Steinunn var valinn besti leikmaður tímabilsins 2026 á lokahófi knattspyrnudeildarinnar í seinasta mánuði," segir í tilkynningu ÍR.

„Tara kom fyrst til félagins fyrir nýliðið tímabil frá Smára og endaði sumarið sem markahæsti leikmaður liðsins. Það að halda Töru er stórt skref í því að halda áfram að byggja ofan á það góða sem við gerðum í sumar. Það eru fáir varnarmenn í deildinni sem ráða við Töru Dís," segir jafnframt í tilkynningu.

„Við fögnum þessum fréttum ekkert smá og óskum þeim til hamingju með samningana en á sama tíma góðs gengis áfram í hvítu og bláu treyjunni."

ÍR leikur í 2. deild kvenna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.