08.10.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sir Alex vildi óska þess að hann hefði rætt fyrr við Guardiola

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Man Utd, segir frá því í bókinni sinni Games Of My Life að hann sjái eftir því að hafa ekki náð að sannfæra Pep Guardiola um að taka við af sér hjá Man Utd.
Það eru 13 ár síðan Sir Alex yfirgaf Man Utd en hann vann úrvalsdeildina 13 sinnum og Meistaradeildina tvisvar á 27 ára tímabili. David Moyes tók við af honum en entist aðeins í tíu mánuði.
Sir Alex segir frá því að hann hafi skipulagt kvöldverð með Guardiola ári áður en hann yfirgaf Man Utd. Hann sér eftir því að hafa ekki skipulagt kvöldverðinn fyrr þar sem Guardiola hafði sýnt sig og sannað hjá Barcelona og gott sem búinn að skrifa undir hjá Bayern.
Eins og flestir vita hefur Guardiola sannað sig sem einn besti stjóri heims undanfarin ár. Hann vann fjölda titla hjá Barcelona, Bayern og Man City.