Álitið - Mestu vonbrigðin?

Stjörnunni var spáð 3. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Blikar fá nokkur atkvæði.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ekki fyrirkomulaginu að kenna að Víkingar séu yfirburðalið í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í harðri fallbaráttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í neðri hlutanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stjörnunni var spáð 3. sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þrjár umferðir eru eftir og hefur Víkingur þegar tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn. Spennan er öllu meiri í botnbaráttunni þar sem hart er barist um áframhaldandi sæti í deildinni á næsta ári.
Til að hita upp fyrir endurkomu deildarinnar fékk Fótbolti.net fimm álitsgjafa til að líta yfir tímabilið til þessa. Spurning dagsins snýr að mestu vonbrigðum Bestu deildarinnar.
Að það sé ekki titilbarátta og sömuleiðis meiri spenna í efri hlutanum. Að því sögðu þá skil ég umræðuna um fyrirkomulagið en það er ekki sjálfgefið að titillinn ráðist í síðasta leik. Hvað þá að liðin sem berjast um titilinn mætist. Það er afar, afar sjaldgæft erlendis og hefur gerst þrisvar á Íslandi á þessari öld. Núverandi fyrirkomulag gerir það í raun bara líklegra að það gerist.
FH – Stjarnan 2014 verður í raun bara ruglaðra og ruglaðra með hverju ári sem líður.
Víkingur – Breiðablik árið 2024 varð til út af fyrirkomulaginu. Það er ekki fyrirkomulaginu að kenna að Víkingar séu yfirburðalið í ár.
Ef lið eru í miðjumoði þá eru síðustu vikurnar hálf „tilgangslausar“, sama hvaða fyrirkomulag og sama í hvaða landi. En þá er hægt að þróa leikmenn. Áhorfendur mæta á leiki Fulham, Mainz, Getafe og Sampdoria ár eftir ár.
Valur Gunnarsson
Mestu vonbrigðin í ár er lið Stjörnunnar. Það gleymist kannski en sama hvað menn segja þá ætluðu þeir sér Íslandsmeistaratitilinn. Þeir enduðu í neðri helmingnum með eitt dýrasta lið landsins. Sá leikmaður sem olli mér mestu vonbrigðunum hjá Stjörnunni er Birnir Snær Ingason. Eftir frábæra innkomu hjá KA í fyrra átti ég von á mun meira frá honum.
Viktor Unnar Illugason
Mestu vonbrigðin eru á milli Stjörnunnar, Breiðabliks og KA. Breiðablik vinnur bikarinn og KA hefur verið á svipuðum slóðum undanfarin ár svo það er Stjarnan. Margir góðir leikmenn, búið að reka tvo þjálfara og þeir áttu að keppa um titilinn. Þeir hafa ekkert getað og eru mestu vonbrigðin. Hægt er að taka Birni þarna út líka. Mikil vonbrigði.
Hilmar Jökull Stefánsson
Ég gæti alveg sagt Breiðablik hérna en við Blikar unnum bikar í ár. Valur átti að vera í baráttu við Breiðablik, KR og Víking um titilinn en þeir hafa verið hörmulegir á þessu tímabili og ég er drullu stressaður yfir því hvernig minn maður Dóri Árna á eftir að koma inn í þetta á næsta tímabili.
Ásgeir Frank Ásgeirsson
Klárlega Stjörnu liðið ég spáði þeim up there með Víking fyrir mót. Mikið fíaskó gengið á í Garðabænum í sumar og liðið ekki heillað mig. Oft á tíðum verið orkulausir og áhugalausir svona að horfa á að utan frá. Maður setti miklar væntingar á þá fyrir mót og þeir voru búnir að styrkja liðið vel en þeir eru búnir að vera langt undir pari.

Álitið - Hvað hefur komið mest á óvart?

Blikar fá nokkur atkvæði.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ekki fyrirkomulaginu að kenna að Víkingar séu yfirburðalið í ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA er í harðri fallbaráttu.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Í neðri hlutanum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
