07.10.26 - 20:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
„Vona að ég missi ekki titlana mína"


Mynd: EPA


Mynd: EPA
Svisslendingurinn Manuel Akanji var spurður út í Man City málið eftir sigur Sviss á Norður-Makedóníu í gær.
Akanji spilaði með City frá 2022-2025 en hann vann ensku úrvalsdeildina tvisvar. Man City var fundið sekt um alvarleg fjárhagsbrot en rannsókn á málinu hófst á meðan Akanji var á mála hjá félaginu.
Akanji spilaði með City frá 2022-2025 en hann vann ensku úrvalsdeildina tvisvar. Man City var fundið sekt um alvarleg fjárhagsbrot en rannsókn á málinu hófst á meðan Akanji var á mála hjá félaginu.

TENGT EFNI
Man City gæti spilað í Meistaradeildinni þó liðið yrði fellt
„Ég er enn í sambandi við nokkra leikmenn en ég veit ekkert meira en þið. Okkur var sagt að halda ró okkar, þeir væru með allt á hreinu, að ekkert slæmt hafi gerst. Ég treysti fólkinu sem stýrir Man City að það sé rétt," sagði Akanji.
„Ég vona að ég missi ekki titlana mína. Það væri synd. En ég sé bara allt í fréttunum.“
„Ég vona að ég missi ekki titlana mína. Það væri synd. En ég sé bara allt í fréttunum.“

