Fotbolti.net
07.10.26 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“

Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“
Canon

Mynd: EPA

Antonio Simoes, fyrrum leikmaður Benfica og portúgalska landsliðsins, segir Cristiano Ronaldo vera sjálfselskan og að hann þurfi að átta sig á hlutverki sínu innan landsliðsins.
Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo
TENGT EFNI

Fékk punkta um hvað hann ætti að segja um Ronaldo

Simoes er 82 ára og goðsögn í portúgölskum fótbolta. Hann lék lengst af með Benfica við hlið Eusebio, eins besta knattspyrnumanns sögunnar.

Hann vill að menn nái sáttum í Ronaldo-málinu sem hefur verið mikið til umræðu undanfarna daga. Ronaldo yfirgaf landsliðshópinn eftir að Jorge Jesus landsliðsþjálfari á að hafa brotið loforð sem hann gaf honum.

„Það er betra að semja frið en að halda þessu stríði áfram. Það er ekkert vit í þessu öllu. Ef hægt er að skapa aðstæður fyrir Ronaldo til að snúa aftur ættu menn að gera það. Allir þurfa að leggja sitt af mörkum, ekki bara einhverjir á bak við tjöldin.“

„Við þurfum ekki að segja að Ronaldo hafi rétt fyrir sér og mér finnst hann ekki hafa það í þessu máli. En ef hann viðurkennir mistök sín eigum við ekki að dæma hann. Gefum honum tækifæri til að kveðja á þann hátt sem sæmir ferli hans og orðspori.“

„Það þarf heilbrigða skynsemi og þolinmæði. Við getum ekki verið upp á kant við alla. Ef Cristiano vill halda áfram skulum við gefa honum tækifæri til þess. Ég er ekki að verja Cristiano, Jesus eða neinn annan. Ég er að tala fyrir heilbrigðri skynsemi. Leyfum þeim að hittast, ræða saman og finna lausn. Hversu yndislegt væri það? Það er mín stærsta ósk,“
sagði Simoes.

Hann var í kringum portúgalska landsliðið á HM í Suður-Afríku árið 2010 og segist þá hafa orðið var við sjálfselsku hjá Ronaldo.

„Stundum finnst manni hann bara hugsa um eigið skinn. Ég upplifði það á HM í Suður-Afríku og fékk tækifæri til að ræða við hann. Strax þá sá ég merki um að hlutirnir væru ekki eins og þeir ættu að vera.“

„Hann hefur átt allan þennan feril, þroskast og orðið fullorðinn maður. Hann þarf að finna leið til að horfa lengra en á sjálfan sig. Þetta snýst ekki bara um að skora mörk heldur líka um leikinn sjálfan. Hann verður að hafa þetta í huga.“

„Ef hann skilur þetta getur hann kvatt með fallegum hætti. Vill hann spila? Það kemur í ljós en þjálfarinn ákveður hvort hann sé tilbúinn til þess.“

„Ég leyfi mér að efast um það og það þarf meira til en að geta bara spilað. Við verðum þó að fara varlega í því sem við segjum. Þegar þú ert 41 árs verðurðu að átta þig á því að þú getir komið að gagni á ákveðnum köflum leiksins. Nærvera þín getur líka hjálpað vegna þess orðspors sem fylgir nafninu og þjálfarinn veit hvernig á að nýta það.“

„Það er enginn glæpur að vilja spila en hann verður að skilja að það þýðir ekki að hann fái að spila allan leikinn.“


Simoes er ekki sannfærður um að refsa þurfi Ronaldo fyrir að yfirgefa hópinn ef allir aðilar ná sáttum.

„Það fer eftir aðstæðum. Það þarf að skoða hvað gerðist og refsingar geta verið með ýmsum hætti. Leyfum þeim fyrst að ræða saman og ef allir vilja biðjast afsökunar skulum við leyfa þeim það.“

„Hversu gott fordæmi væri það fyrir portúgölsku þjóðina? Það eru öfgar á báða bóga. Vilja þeir mætast á miðri leið? Það gengur ekki ef aðeins annar aðilinn er tilbúinn til þess.“


Hann telur fjarveru Ronaldo ekki hafa komið niður á portúgalska liðinu sem vann þrjá leiki án hans og lauk verkefninu með fullt hús stiga.

„Þegar ég horfi á leikina virðist þetta ekki hafa haft nein áhrif á liðið. Bara alls engin. Liðið spilaði vel og vann. Það þýðir samt ekki að Ronaldo eigi ekki að vera í landsliðinu. Hann getur komið að gagni án þess að byrja og þarf ekki endilega að spila 90 mínútur.“

„Ronaldo spilaði flestar mínútur allra undir stjórn Roberto Martinez og ég sé engin rök fyrir því. Þegar hann hefur skorað þúsundasta markið heldur hann svo áfram með landsliðinu þar til hann er 49 ára.“


Ronaldo var sár yfir því að hafa verið látinn hita upp gegn Noregi án þess að koma inn á, þrátt fyrir að Jesus hefði að hans sögn lofað honum hálftíma. Hann yfirgaf hópinn eftir leikinn en Simoes segir þjálfarann verða að fá að ráða.

„Ég ætla ekki að blanda mér í þá umræðu því Jesus hefur fullt vald til að láta Ronaldo hita upp í eina mínútu eða þrjátíu. Hann er þjálfarinn. Af hverju ætti Ronaldo að fá sérmeðferð? Hann er í sérflokki en er hann ekki samt einn af leikmönnum liðsins? Hættum þessu rugli og hellum ekki olíu á eldinn.“

„Honum var frjálst að gera það sem hann gerði en hann ber sjálfur ábyrgð á því. Að lokum kemur að okkur öllum.“

„Ég lék við hlið kóngs sem hét Eusebio og á sama tíma og Pele og Maradona en ég hef aldrei séð neitt þessu líkt í kringum kóng.“

„Er ekki best fyrir 41 árs mann að hætta að spila fótbolta?“
spurði hann að lokum.
Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“
Canon

Mynd: EPA

Segir Ronaldo aðeins hugsa um eigið skinn - „Spilar þangað til hann er 49 ára“
Canon

Mynd: EPA

Antonio Simoes (t.v.) vonar að Ronaldo nái að sættast við Jesus

Antonio Simoes (t.v.) vonar að Ronaldo nái að sættast við Jesus

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.