Fotbolti.net
07.10.26 - 15:00
Elvar Geir Magnússon

David Silva tekur skóna af hillunni

David Silva tekur skóna af hillunni
Canon

Mynd: EPA

David Silva hefur tekið skóna af hillunni til að spila fyrir Sha Tin í efstu deild í Hong Kong.

Silva er 40 ára og vann HM með spænska landsliðinu 2010. Hann varð einnig Evrópumeistari í tvígang með spænska liðinu og vann ensku úrvalsdeildina fjórum sinnum með Manchester City.

Hann vann alls ellefu stóra titla á tíu árum hjá City og það er stytta af honum fyrir utan Etihad leikvanginn.
Silva lagði skóna á hilluna 2023 eftir að hafa slitið fremra krossband á æfingu hjá Real Sociedad fyrir tímabilið.

„Ég er svo spenntur að fara til Hong Kong og njóta menningarinnar, matarins í Sha Tin og auðvitað fótboltans," segir Silva en liðið er í áttunda sæti eftir fjórar umferðir.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.