Fotbolti.net
08.11.26 - 13:32
Brynjar Ingi Erluson

Birta kom við sögu í fyrsta sigri Parma

Birta spilaði í sigri Parma

Birta spilaði í sigri Parma

Canon

Mynd: Parma

Kvennaboltinn
Birta Georgsdóttir og stöllur hennar í Parma fögnuðu sínum fyrsta deildarsigri á tímabilinu þegar þær lögðu Como að velli, 1-0, í dag.
Gaia Distefano tryggði Parma fyrsta sigur tímabilsins með marki á 61. mínútu.

Birta, sem gekk til liðs við Parma frá Genoa í sumar, kom inn af bekknum undir lok leiksins. Þetta var fjórði deildarleikur hennar fyrir félagið, en hún á enn eftir að fá tækifæri í byrjunarliðinu.

Parma er nú komið með fimm stig og situr í níunda sæti deildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.