Fotbolti.net
28.11.26 - 13:00
Brynjar Ingi Erluson

Sky: Swansea nálgast samkomulag um Frey

Sky: Swansea nálgast samkomulag um Frey
Canon

Mynd: EPA

Sky Sports greinir frá því að velska félagið Swansea City sé að nálgast samkomulag við Rosenborg um Frey Alexandersson.
Hvaða Íslendinga gæti Freyr tekið með sér til Wales?
TENGT EFNI

Hvaða Íslendinga gæti Freyr tekið með sér til Wales?

Swansea hefur rætt við Frey um að taka við stjórn liðsins og er hann þegar kominn með tilboð frá félaginu.

Swansea hefur einnig átt í viðræðum við Rosenborg um greiðslu fyrir þjálfarann og samkvæmt Sky styttist nú í að félögin nái samkomulagi.

Freyr staðfesti á miðvikudag að hann hefði átt í viðræðum við Swansea, en búist er við að hann stýri Rosenborg gegn Molde í norsku úrvalsdeildinni í dag.

Ashley Williams verður áfram við stjórnvölinn hjá Swansea til bráðabirgða og mun stýra liðinu í nágrannaslagnum gegn erkifjendunum í Cardiff í ensku B-deildinni á morgun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.