Fotbolti.net
28.11.26 - 13:24
Brynjar Ingi Erluson

Arnór Breki og Jóel áfram hjá Fylki (Staðfest)

Arnór Breki verður áfram hjá Fylki

Arnór Breki verður áfram hjá Fylki

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnór Breki Ásþórsson og Jóel Baldursson hafa báðir framlengt samninga sína við Fylki og verða því áfram í herbúðum félagsins næstu árin.
Arnór er 28 ára gamall bakvörður sem gekk til liðs við Fylki frá Fjölni árið 2022.

Hann var varafyrirliði Fylkis á síðasta tímabili þegar liðið komst alla leið í úrslitaleik umspils Lengjudeildarinnar. Arnór lék 39 leiki á tímabilinu og er nú kominn með 150 leiki fyrir félagið.

Hann hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki sem gildir út árið 2028.

Hinn 19 ára gamli Jóel hefur einnig framlengt samning sinn við félagið, en hans samningur gildir út árið 2029.

Jóel er uppalinn Fylkismaður sem hefur verið að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki. Hann lék ellefu leiki á síðasta tímabili og hefur alls komið við sögu í 22 leikjum í öllum keppnum.
Jóel skrifaði undir þriggja ára samning

Jóel skrifaði undir þriggja ára samning

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.