Fotbolti.net
08.12.14 - 12:35
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net

Upptaka - Rúnar Már: Meira en tilbúinn í efstu deild

Auglýsing
Rúnar Már í búningi Sundsvall.

Rúnar Már í búningi Sundsvall.

Canon

Mynd: Heimasíða GIF Sundsvall

Rúnar Már Sigurjónsson, leikmaður Sundsvall í Svíþjóð, var gestur útvarpsþáttarins Fótbolta.net á laugardaginn en hægt er að hlusta á viðtalið í spilaranum hér að ofan.

Sundsvall komst upp í efstu deild í Svíþjóð á liðnu tímabili.
„Það hugsaði enginn um annað en að fara upp. Við vorum langbesta fótboltaliðið í deildinni en gátum líka tekið þetta „hard way\" á ljótum grasvöllum,\" segir Rúnar sem lék lykilhlutverk á miðju liðsins í sumar.

Rúnar var úti í kuldanum í fyrra eftir að hafa lýst yfir óánægju sinni við þjálfarann. Sundsvall komst þá í umspil sem tapaðist.

„Ég kom inná í tíu mínútur í lokin þarna nokkra leiki í röð og sagði við þjálfarann að ég væri brjálaður og fékk í kjölfarið ekki að spila neitt síðustu tíu leikina eða svo. Ég kom þess vegna ekkert nálægt umspilinu eða neitt. Það var ekkert illt á milli samt og ég vissi að allir myndu byrja á núlli á undirbúningstímabilinu. Þá þurfti ég bara að rífa mig í gang.\"

Í sumar átti Rúnar svo fast sæti og spilaði virkilega vel.

„Ég hef aldrei verið í eins góðu standi. Eftir tímabilið vildi ég ekki í frí, ég vildi bara halda þessu áfram. Ég er meira en tilbúinn í úrvalsdeildina.\"

Rúnar er frá Sauðárkróki og líkir bænum Sundsvall við Krókinn.

„Þetta er mjög lítill og rólegur bær. Ég bý í miðbænum en er nokkrar mínútur að labba á æfingasvæðið. Þetta minnir mann á Sauðárkrók. Þetta er mjög fínt og mjög rólegt, þannig vil ég hafa það.\"

Í viðtalinu ræðir Rúnar einnig um liðsfélaga sinn Jón Guðna Fjóluson, körfubolta, gervigras, hlutverk sitt í Sundsvall og skrefin sem hann hefur tekið á ferlinum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.