Fotbolti.net
24.06.26 - 10:14
Elvar Geir Magnússon

Kallar eftir fimm breytingum á byrjunarliði Englands

Bukayo Saka kom af bekknum gegn Ganverjum.

Bukayo Saka kom af bekknum gegn Ganverjum.

Canon

Mynd: EPA

Enska landsliðið er með fjögur stig að loknum tveimur leikjum í riðlakeppni HM en liðinu skorti sköpunarmátt í markalausu jafntefli gegn Gana í gær.

England mætir Panama í lokaleik sínum í riðlinum um helgina og Kasra Moradi, blaðamaður hjá Mirror, kallar eftir því að Thomas Tuchel geri fimm breytingar á byrjunarliðinu fyrir þann leik.
John Stones fyrir Marc Guehi
Stones missti af stærstum hluta tímabilsins vegna meiðsla en leikurinn gegn Panama er kjörið tækifæri til að fá hann í byrjunarliðið og byggja upp takt og leikæfingu fyrir útsláttarkeppnina. Stones er lykilmaður í vörninni.

Nico O’Reilly fyrir Reece James
James hefur verið mikið meiddur undanfarin ár og ætti að vera hvíldur fyrir mikilvægari leiki í keppninni. Djed Spence ætti að færast hægra megin og Nico O'Reilly koma í vinstri bakvörðinn.

Morgan Rogers fyrir Declan Rice
Rice hefur verið að spila í gegnum bakmeiðsli í gegnum mótið og þá var hann bundinn um kálfann eftir leikinn í Boston. Þó hann yrði leikfær gegn Panama þá verður Tuchel að skoða hvort ekki sé rétt að hvíla hann gegn Panama. Morgan Rogers er allt öðruvísi leikmaður en mótherjinn er Panama og England mun stýra ferðinni algjörlega. Rogers kann að skapa og skora.

Bukayo Saka fyrir Noni Madueke
Saka er orðinn betri eftir meiðsli og hefði getað byrjað gegn Gana. Þegar hann kom inn af bekknum sást gæðamunurinn á honum og Madueke. Það yrði kannski ekki sniðugt að láta Saka spila 90 mínútur gegn Panama en Saka mun líklega byrja í útsláttarkeppninni og gott að gefa honum byrjunarliðsleik.

Marcus Rashford fyrir Anthony Gordon
Frammistaða Anthony Gordon gegn Gana var mikil vonbrigði. Marcus Rashford á skilið að fá byrjunarliðsleik til að sýna hvað hann getur komið með að borðinu.

Thomas Tuchel ræðir við Marcus Rashford.

Thomas Tuchel ræðir við Marcus Rashford.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.