Fotbolti.net
24.06.26 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson

Englendingar heimsmeistarar í jafnteflum

Englendingar heimsmeistarar í jafnteflum
Canon

Mynd: EPA

Enska landsliðið er sú þjóð sem hefur gert oftast jafnteflið frá því heimsmeistaramótið var sett á laggirnar árið 1930.
Bellingham ósammála FIFA - „Ég á þetta ekki skilið“
TENGT EFNI

Bellingham ósammála FIFA - „Ég á þetta ekki skilið“

Englendingar gerðu markalaust jafntefli við Gana í annarri umferð riðlakeppninnar á HM í gær.

Þetta var í 23. sinn sem England gerir jafntefli á heimsmeistaramóti og í 13. sinn sem liðið gerir markalaust jafntefli.

Englendingar eiga því þann vafasama heiður að hafa gert flest jafntefli í sögu HM og flest markalaus jafntefli sömuleiðis.

Sannir heimsmeistarar í jafnteflum.

Næstar á eftir Englandi koma Argentína og Ítalía, sem hafa gert 21 jafntefli hvor þjóð, en Brasilía er þar á eftir með 20.

Þegar aðeins markalaus jafntefli eru talin er Brasilía næst á listanum með níu slík, en Úrúgvæ kemur þar á eftir með átta.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.