Fotbolti.net
24.06.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Þjálfari Gana: VAR-dómarinn hlýtur að hafa verið í kaffipásu

Carlos Queiroz, þjálfari Gana

Carlos Queiroz, þjálfari Gana

Canon

Mynd: EPA

Englendingar voru stálheppnir að fá ekki rautt spjald og tapa leiknum gegn Gana á HM í gær, en þetta sagði Carlos Queiroz, þjálfari Gana, á blaðamannafundi eftir leikinn.
HM: Englendingar jarðtengdir í Boston
TENGT EFNI

HM: Englendingar jarðtengdir í Boston

Carlos Queiroz, þjálfari Gana, var ósáttur með ýmislegt í leiknum gegn Englandi og fannst halla verulega á sína menn í dómgæslunni.

Hann vildi fá vítaspyrnu fyrir Gana og rautt spjald á Jordan Pickford, markvörð Englendinga, sem kom langt út úr teignum og hamraði Caleb Yirenkyi niður.

Sjáðu skógarhlaupið hjá Pickford

Queiroz átti erfitt með að skilja hvernig VAR-kerfið var notað í leiknum og skaut föstum skotum á VAR-dómarana eftir leik. Hann gaf í skyn að þeir hefðu einfaldlega skroppið í kaffi þegar stóru atvikin komu upp.

„Virkar VAR enn? Erum við enn með þessa tækni? Þetta átti að vera augljós vítaspyrna. Svo var líka augljóst brot sem tók allan vind úr okkur. Þetta var rautt spjald, hreint og klárt. Það liggur enginn vafi á því.

„Hann sá þetta ekki, kannski var hann í fríi. Ef VAR-dómarinn hefði ekki farið í kaffipásu þá hefðum við fengið vítaspyrnu og unnið leikinn. Þeir voru heppnir. Ég væri alveg til í að fá kaffið mitt, en þetta var augljóst víti. Hann átti að sjá rauða spjaldið,“
sagði Queiroz.

Sjáðu þegar Konsa braut af sér í teignum

Queiroz virtist þó reyna að milda ummælin undir lokin, væntanlega til að koma sér ekki í frekari vandræði.

„Neinei, ég biðst afsökunar á kaldhæðninni, en þegar ég er alvarlegur þá er mér refsað. Ég er bara að grínast núna,“ sagði hann.

Queiroz vildi sjá rautt á Pickford

Queiroz vildi sjá rautt á Pickford

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.