Leeds að landa stórum bita

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Leeds United hefur náð samkomulagi við Harry Wilson um að hann gangi í raðir félagsins á frjálsri sölu. Það er Sky Sports sem greinir frá.
Velski sóknarmaðurinn mun yfirgefa Fulham þegar samningur hans rennur út í lok mánaðar.

Aston Villa, Everton og Benfica voru orðuð við Wilson en hann virðist á leið til Leeds. Wilson á 69 A-landsleiki og hefur skorað 17 mörk fyrir Wales.
Wilson er 29 ára er uppalinn hjá Liverpool en fékk aldrei almennilegt tækifæri til að skína þar og var seldur til Fulham 2022 eftir að hafa staðið sig vel á láni hjá félaginu. Hann átti mjög gott tímabil með Fulham og var valinn besti leikmaður liðsins, kom alls að átján mörkum á síðasta tímabili.
Leeds reyndi að kaupa Wilson síðasta sumar en þau félagaskipti duttu upp fyrir sig á lokadegi félagaskiptagluggans.
Leeds er líka að reyna fá Julian Brandt á frjálsri sölu frá Dortmund og Shea Charles, miðjumann, Southampton, sem kostar meira en þær 20 milljónir punda sem Leeds bauð í hann.