Æstur Óskar um Ronaldo - „Hann er svo vandræðalegur“

Cristiano Ronaldo fagnar markinu

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Cristiano Ronaldo fagnar markinu

Mynd: EPA
Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR og spekingur RÚV, á HM var heitt í hamsi þegar hann ræddi um portúgalska sóknarmanninn Cristiano Ronaldo í HM-stofunni í kvöld.

TENGT EFNI
Þungu fargi létt af Ronaldo - „Ég er mættur aftur!“
Ronaldo opnaði markareikninginn á mótinu með því að skora tvö mörk og var valinn maður leiksins í 5-0 stórsigrinum á Úsbekistan.
Portúgalinn hefur fengið sinn skerf af gagnrýni fyrir og á mótinu, en svaraði þeirri gagnrýni með frábærri frammistöðu, að vísu gegn töluvert veikari andstæðingi, en þetta hefur verið mikill léttir engu að síður.
Óskar Hrafn talaði aðeins um Ronaldo og frammistöðu hans á RÚV.
„Nei, hann á ekkert meira inni. Hann var að spila á móti Úsbekistan og með fullri virðingu fyrir þeim var besti varnarmaður þeirra hægra megin í vörninni, en hann gerði ekki mikið þar. Þeir fóru hinum megin og mér líður eins og þegar það koma sterkari andstæðingar þá er hann myllusteinn um hálsinn á Martinez. Það er vandræðalegt að fylgjast með Martinez á hliðarlínunni þegar Ronaldo skorar.“
„Ég held að ef að Portúgal ætlar alla leið þá held ég að þeir verði að hvíla Ronaldo,“ sagði Óskar.
Ronaldo var heldur dramatískur er hann fagnaði fyrsta markinu, hljóp að bekknum ásamt því að taka klassíska fagnið sem hann tekur í öllum leikjum. Óskar fannst þetta heldur mikið.
„Við töluðum um fagnið hjá Jesse Marsch um daginn og allir hneykslaðir. Ég varði minn mann Jesse og þó ég sé enginn Ronaldo-maður þá ætla ég að verja hann hérna, en það er 1-0 og sex mínútur búnar. Er þetta ekki aðeins of mikið? Þetta er Úsbekistan, ekki úrslitaleikur HM.“
„Sérðu þetta? Þetta er yfirdrifið. Ég skil hann, ekki búinn að skora í tíu leikjum og allir að gagnrýna alla, hans herbúðir að kenna öllum öðrum um. Mikill léttir og ég skal verja hann fram í rauðan dauðan, en fyrir ykkur sem viljið hafa þetta hófstilltara. Er þetta ekki aðeins of mikið? Hann hljóp til leikmannanna, þaðan tók hann U-beygju að bekknum og aðeins til áhorfendanna og náði síðan að standa einn og taka þetta ömurlega 'Suiii' eða hvað sem þetta er þetta drasl“
„Hann var ekki að fagna einn. Það þurfti að lengja leikinn um mínútu. Þetta var lengra en vatnspása. Það má fagna, en miðað við það sem þið hafið sett út á hérna þá segi ég að þetta var yfirdrifið.“
Eftir leikinn sagði Ronaldo beint í myndavélina: „Ég er mættur aftur!“ og það fannst Óskari aðeins of mikið af hinu góða.
„Hann er svo vandræðalegur. Ég ætla bara að segja það að þegar þeir mæta liði sem er á topp fimmtán á heimslistanum. Hann mun ekki eiga snertingu inn á teig. Það er bara þannig,“ sagði æstur Óskar ennfremur.